Nýir starfsmenn Skólaskrifstofu Suðurlands
Ásta Björk Björnsdóttir kennsluráðgjafi hóf störf hjá Skólaskrifstofu Suðurlands í ágúst 2010. Ásta Björk er grunnskólakennari að mennt, auk menntunar í sérkennslufræðum. Ásta Björk stundar nú mastersnám í sérkennslufræðum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands samhliða starfi á Skólaskrifstofu Suðurlands. Hún starfaði sem sérkennslu- og kennsluráðgjafi í Borgarbyggð síðustu þrjú ár og þar á undan starfaði hún sem kennari á Suðurlandi.
Snorri Rafn Sigmarsson sálfræðingur hóf störf hjá Skólaskrifstofu Suðurlands í byrjun árs 2009. Snorri Rafn lauk Mastersprófi í klínískri sálarfræði frá Háskólanum í Amsterdam vorið 2008 og fékk starfsréttindi sem sálfræðingur sumarið 2008.
