Verklagsreglur um upplýsingagjöf

VERKLAGSREGLUR UM UPPLÝSINGAGJÖF

 

Verklagsreglur Skólaskrifstofu Suðurlands um upplýsingagjöf til þriðja aðila skv. Upplýsingalögum nr. 50/1996
 

Grunnhugsunin í lögunum er að allir geti fengið hvaða upplýsingar sem er hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga.
 

Upplýsingalögin ná ekki til ákvæða sérlaga sem fjalla um einkamál einstaklinga og svo nokkurra annara atriða sem nánar er kveðið á um.
 

Einstaklingur á alltaf rétt á að fá aðgang (afrit) af gögnum sem varða hann sjálfan og aðeins hann sjálfan. Einnig getur “bær” aðili veitt öðrum heimild til aðgengis gögnum um sig.
 

Sé getið annars aðila í gögnum er það komið undir mati, ákvörðun stjórnvalds, hvort aðili geti fengið aðgengi að þeim gögnum, skal þar meta mikilvægi upplýsinga og eðli þeirra. Meginreglan er sú að enginn fær trúnaðarupplýsingar um annan, sem sérlög taka til og eðlilegt eða sanngjarnt er að leynt fari. Lögin gera þá aðila mögulegt að skjóta ákvörðu stjórnvalds til sérstakrar úrskurðarnefndar sem úrskurðar um málið. Úrskurði nefndarinnar má skjóta til dómstóla.
 

Aðili máls hefur ekki aðgengi að vinnuskjölum starfsmanna stofnunar nema að skjölin hafi að geyma lokaniðurstöðu, sem ekki er að finna annars staðar í gögnum.

 

REGLUR SKÓLASKRIFSTOFU SUÐURLANDS

 

Óski einhver aðili eftir aðgengi að gögnum sem varðveitt eru í skjalasafni Skólaskrifstofu Suðurlands, skal viðkomandi fylla út þar til gerða umsókn og afhenda framkvæmdastjóra.

Innan viku frá því að umsókn berst afgreiðir framkvæmdastjóri umsóknina.

Umsóknir og afgreiðsla umsókna skulu færðar í skjalakerfi skrifstofunnar.

Umsókn um upplýsingar úr skjalasafni Skólaskrifstofu má finna hér: