Um tenglakerfið
Hlutverk tengils
Meginhlutverk tengils er þríþætt:
- Að sinna þeim verkefnum sem honum hefur verið falið að vinna í samvinnu við skólann.
- Að koma þeim verkefnum sem hann vinnur ekki sjálfur í hendur þess starfsmanns Skólaskrifstofu sem vinna skal málið í samvinnu við skólann og sjá til þess að málið hljóti eðlilega meðferð.
- Að gefa starfsfólki skólans tækifæri á að hitta tengil og spjalla óformlega um mál, þar getur verið um að ræða upplýsingagjöf og almennar leiðbeiningar eða samræður um nemanda eða nemendahópa.
Tilvísanir
Kennari sem vill eiga formlegt samstarf við Skólaskrifstofuna um ákveðið mál byrjar á því að fylla út þar til gert tilvísunareyðublað sem hann fær hjá fulltrúa skólans eða skólastjóra. Tvenns konar tilvísunareyðublöð eru í notkun. Annars vegar fyrir einstaklingsmál og hins vegar vegna nemendahópa eða bekkja.Hægt er að nálgast tilvísunareyðublöðin hér .
Samskipti kennara við annað starfsfólk Skólaskrifstofu
Öllum kennurum er frjálst að eiga óformleg samskipti við starfsfólk skrifstofunnar án vitneskju tengils. Tengill þarf hins vegar að vita af samskiptum þar sem skrifleg tilvísun liggur að baki vegna þess að það er hans hlutverk að fylgjast með að tilvísanir frá skólanum hljóti eðlilega meðferð.
Foreldrar og ráðgjafarþjónustan
Foreldrar geta vísað málum barna sinna beint til skrifstofunnar, án afskipta skóla. Foreldrar geta beðið um greiningarvinnu á börnum sínum. Foreldrar eiga líka rétt á almennum leiðbeiningum um uppeldi barna.
