Aðilar að Skólaskrifstofu Suðurlands eru öll sveitarfélög á Suðurlandi utan Vestmannaeyja og Sveitarfélagsins Ölfuss.
Daglegur opnunartími skrifstofunnar er kl. 8-12 og 13 til 16. Lokað er í júlímánuði vegna sumarleyfa.
Í dag starfa við stofnunina forstöðumaður, 3 sálfræðingar, 3 sérkennslu- og kennsluráðgjafar, talmeinafræðingur og leikskólaráðgjafi.
Í stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands sitja:
Þórunn Jóna Hauksdóttir, varaformaður, úr Árborg
Ingvar Pétur Guðbjörnsson, úr Rangárþingi ytra
Varamenn eru:
Böðvar Bjarki Þorsteinsson, úr Árborg
Margrét Sigurðardóttir, úr Flóahreppi
Sif Hauksdóttir, úr Mýrdalshreppi
Fundartími stjórnar er 2. mánudagur í mánuði kl. 14:00.
----------------------------------------------------------------------------------------------------
Ársskýrslur Skólaskrifstofu Suðurlands:
1996-1997
1997-1998
1998-1999
1999-2000
2000-2001
2001-2002
2002-2003
2003-2004
2004-2005
2005-2006
2006-2007
2007-2008
2008-2009
ÚTTEKTIR
Úttekt á Skólaskrifstofu Suðurlands
var gerð 2007. Skýrsluna má nálgast hér.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Samþykktir Skólaskrifstofu Suðurlands
1. Markmið og hlutverk
1.1 Skólaskrifstofa Suðurlands, skammstafað SKS, er byggðasamlag sveitarfélaga í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Heimili hennar og varnarþing er að Austurvegi 56, Selfossi.
1.2 Verkefni SKS eru eftirfarandi:
a) Greiningar og ráðgjöf samkvæmt 40. grein grunnskólalaga nr. 91/2008 og 21.-23. gr. laga um leikskóla sbr. lög nr. 90/2008, mat og eftirfylgd skv. sömu lögum og lagagreinum.
b) Skýrslugerð og upplýsingagjöf til skóla, sveitarstjórna og annarra opinberra aðila.
c) Umsjón með gagna- og upplýsingasafni fyrir skólana.
d) Umsjón með endurmenntun fyrir kennara í samvinnu við háskólastofnanir á uppeldissviði, námskeiðahald fyrir starfsfólk grunnskólanna og leikskólanna og aðstoð við þróunar- og nýbreytnistarf í grunnskólunum og leikskólum.
e) Eftirlit og aðstoð við Sérdeild Suðurlands.
f) Umsjón með rekstri ART-verkefnis á Suðurlandi, sem innifelur meðferð fyrir börn með tilfinninga- og hegðunarraskanir, þjálfun og handleiðslu starfsfólks skóla, upplýsingagjöf og fræðslu sem snýr að verkefninu. Rekstur verkefnisins verði ekki fjármagnaður með framlagi sveitarfélaganna sbr. grein 6.1.
g) Heimild til að veita framhaldsskólum á svæðinu þjónustu skv. 34. gr. laga um framhaldsskóla frá 2008, enda hafi verið gerður þjónustusamningur þar um.
2. Um aðalfund og félagafundi
2.1 Aðalfund Skólaskrifstofu Suðurlands skal halda fyrir lok októbermánaðar ár hvert samhliða ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Á kosningaári sveitarstjórna skal halda hann að loknum kosningum en þó eigi síðar en 15. september. Yfirumsjón og formlegur undirbúningur ársþings er í höndum stjórnar SASS.
2.2 Félagafund skal boða ef þörf krefur að mati stjórnar eða ef þriðjungur aðildarsveitarfélaga krefst þess skriflega. Sömu reglur gilda um þá og reglulega aðalfundi.
2.3 Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands semur dagskrá aðalfundar og skal hún send aðalfundarfulltrúum eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfundinn og skulu aðildarsveitarfélög hafa tilkynnt um fulltrúa á aðalfund fyrir þann tíma. Með aðalfundarboði skal senda tillögu að fjárhagsáætlun næsta árs, endurskoðaða ársreikninga, ársskýrslu stjórnar, tillögur stjórnar og tillögur sem borist hafa frá aðildarsveitarfélögunum.
2.4 Aðalfundur mótar stefnu og starf Skólaskrifstofunnar og ákveður hvaða mál skuli lögð mest áhersla á fram að næsta aðalfundi. Á aðalfundi er afgreidd skýrsla um liðið starfsár, endurskoðaðir reikningar og tillögur að fjárhagsáætlun og gjaldskrá fyrir næsta ár.
2.5 Tillögur og ályktanir sem hljóta eiga afgreiðslu á aðalfundi skal senda stjórn 3 vikum fyrir aðalfund.
2.6 Aðalfundurinn er opinn öllum sveitarstjórnarmönnum aðildarsveitarfélaganna sem áheyrnarfulltrúum.
3. Um kosningar til aðalfundar
3.1 Á aðalfundi Skólaskrifstofu Suðurlands eiga sæti: a. Einn fulltrúi fyrir sveitarfélag sem hefur 200 íbúa eða færri. b. Tveir fulltrúar fyrir sveitarfélag sem hefur 201 til 500 íbúa. c. Þrír fulltrúar fyrir sveitarfélag sem hefur 501 til 1000 íbúa d. Sveitarfélag með yfir 1000 íbúa skal auk þess fá einn fulltrúa fyrir hvert byrjað þúsund íbúa. e. Stjórnarmenn SKS og framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaga með málfrelsi og tillögurétti séu þeir ekki kjörnir fulltrúar Miða skal við íbúafjölda sveitarfélags þann 1. desember næstliðins árs.
3.2 Kjörgengir á aðalfund eru framkvæmdastjórar sveitarfélaga, sveitarstjórnarmenn og varamenn þeirra. Sveitarstjórnarmaður missir kjörgengi sitt á næsta aðalfundi eftir að hann hættir setu í sveitarstjórn.
4. Um kosningar á aðalfundi
4.1 Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða. Samþykktum byggðasamlagsins verður þó aðeins breytt á aðalfundi með samþykki 2/3 hluta aðildar¬sveitarfélaga.
4.2 Á aðalfundi skal kosin 3 manna stjórn Skólaskrifstofunnar og 3 til vara. Aðal¬fundur kýs beinni kosningu úr þessum hópi formann og varaformann.
4.3 Aðalfundur skal kjósa tvo skoðunarmenn ársreikninga og tvo til vara. Skulu þeir yfirfara og árita ársreikninga Skólaskrifstofunnar.
4.4 Aðalfundur kýs starfsnefndir fundarins og menn í starfsnefndir sem starfa að ákveðnum málefnum milli funda, samkvæmt sérstakri samþykkt aðalfundarins.
4.5 Fundargerðir og fundarsamþykktir aðalfundar skal færa í sérstaka gerðabók og jafnframt gerð grein fyrir öðru því sem gerist á aðalfundi. Fundargerð skal lesin upp í fundarlok og borin undir atkvæði ef þess er kostur en heimilt er að fela fundarstjóra og fundarritara að ganga frá fundargerðinni. Setja skal SKS sérstök aðalfundarsköp sem aðalfundur þarf að samþykkja.
5. Um stjórn og starfslið
5.1 Stjórnin er málsvari SKS á milli aðalfunda og fylgir fram samþykktum stjórnarfunda og aðalfundar. Stjórnin vinnur að stefnumarkandi málum og gerir tillögur um ný mál, er leggja skal fyrir aðalfund til ákvörðunar. Stjórn SKS fer jafnframt með yfirstjórn á rekstri félagsins og ber ábyrgð á að rekstur sé innan þeirra fjárheimilda sem aðalfundur SKS hefur samþykkt.
5.2 Stjórnarfundi skal halda eftir þörfum en eigi sjaldnar en 6 sinnum á ári og er stjórnarfundur lögmætur sé meiri hluti stjórnar mættur.
5.3 Stjórn Skólaskrifstofu ræður framkvæmdastjóra til fimm ára, markar starfssvið hans og launakjör og gerir við hann skriflegan ráðningarsamning og skal ráðning hans miðuð við áramót. Aðra starfsmenn ræður framkvæmdastjóri. Heimild stjórnar þarf að liggja fyrir, ef um fjölgun stöðugilda er að ræða. Um starfskjör starfsmanna Skólaskrifstofu fer samkvæmt ákvæðum kjarasamninga og ráðningarsamnings. Allar ráðningar skulu vera innan ramma markaðrar sameiginlegrar launa- og starfsmannastefnu, sbr. grein 5.6.
5.4 Framkvæmdastjóri veitir Skólaskrifstofunni forstöðu og annast framkvæmd málefna eftir því sem stjórn ákveður og hefur á hendi, fjármálastjórn og starfsmannastjórn. Framkvæmdastjóri á sæti á aðalfundi og stjórnarfundum. 5.5 Framkvæmdastjóri skal að jafnaði boða stjórnarfundi í samráði við formann stjórnar. Telji formaður stjórnar að óeðlilegur dráttur sé á fundarboðun, getur hann hlutast til um fundarboðunina. Framkvæmdastjóra er skylt að leggja fyrir stjórn öll meiri háttar erindi og nýmæli.
5.6 Starfsmanna- og launastefna er sameiginleg með Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands Sorpstöð Suðurlands og Skólaskrifstofu Suðurlands. Umsjón og þróun launa- og starfsmannastefnunnar er í höndum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í samráði við stjórnir viðkomandi samlaga. Framkvæmdastjóri Skólaskrifstofu ber ábyrgð á að sameiginlegri starfsmanna- og launastefnu verði fylgt. Sértæk starfsmannastefna, sem snýr að fagsviði Skólaskrifstofunnar skal unnin og staðfest af stjórn telji hún þörf á slíkri stefnu.
6. Um árgjöld
6.1 Rekstur SKS greiðist af aðildarsveitarfélögunum í samræmi við fjölda barna í sveitarfélögunum á aldrinum 1 – 15 ára.
6.2 Allur kostnaður vegna verkefna sem falla undir lið 1.2.g skal innheimtur með þjónustugjöldum.
7. Um úrsögn, slit
7.1 Kjósi sveitarfélag að hætta þátttöku í Skólaskrifstofunni, skal tilkynna það stjórninni eigi síðar 1. júlí og taki úrsögnin gildi um næstu áramót á eftir. Ábyrgðir á skuldbindingum Skólaskrifstofunnar haldast í réttu hlutfalli við aðildartíma og þátttökuhlutfall sveitarfélags í skrifstofunni. Hætti sveitarfélag þátttöku í skólaskrifstofu þá skal jafnframt fara fram endurskoðun á sam¬þykktum þessum. Um úrsögn að öðru leyti fer samkvæmt ákvæðum 84. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
7.2 Byggðasamlagið verður ekki lagt niður nema tveir löglega boðaðir fundir samþykki það með 2/3 hluta atkvæða. Fundirnir skulu haldnir með a.m.k. tveggja mánaða millibili. Tillaga að félagsslitum skal fylgja fundarboði. Áður en seinni fundurinn er haldinn skal afstaða aðildarsveitarfélaga til félagsslitanna liggja fyrir. Til þess að slit á byggðasamlaginu nái fram að ganga þurfa 2/3 hlutar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga/fyrirtækja að staðfesta þau.
8. Um breytingar á samþykktum og gildistökuákvæði
8.1 Breyta má samþykktum þessum á aðalfundi ár hvert og skulu tillögur um breytingar á samþykktum fylgja fundarboði. Tillögur til breytinga á samþykktum skulu sendar stjórn þremur vikum fyrir aðalfund.
8.2 Breyting á samþykktum telst samþykkt, ef hún nýtur stuðnings 2/3 hluta aðildarsveitarfélaga á lögmætum aðalfundi.
8.3 Samþykktir þessar öðlast gildi við samþykki þeirra. Ákvæði til bráðabirgða Núverandi stjórn SKS starfar fram að næsta aðalfundi en þá verður kosin ný stjórn í samræmi við ákvæði greinar 4.2. í samþykktum þessum. Þannig samþykkt á aukaaðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 26. apríl 2006.
