25.11.2008
Bright Start vefsíða opnar
Opnuð hefur verið vefsíða um Bright Start kennslu.  Bright Start er tilraunaverkefni sem rekið hefur verið í fjórum skólum á Suðurlandi og gefist afar vel, en þeir eru Hvolsskóli og Leikskólinn Örk á Hvolsvelli og Laugalandsskóli og Leikskólinn Laugalandi í Holtum.  Bright Start er notað fyrir börn á aldrinum 3-9 ára og er tilvalið verkefnið til að tengja skólastigin leik- og grunnskóla.

Í Bright Start er unnið út frá þeirri hugmyndafræði að greind sé tvíþætt; annars vegar það sem við fáum í vöggugjöf og hins vegar vitþroskaferli sem vinna má með og bæta.  Unnin hefur verið samanburðarrannsókn samhliða tilraunaverkefninu.

Sjá nánar á Bright Start síðunni.  Höfundur hennar er Jónella Sigurjónsdóttir grunnskólakennari og Bright Start þjálfari.


Til baka