8.2.2008
Greiningarteymi barna
Greiningarteymi barna:
 
Greiningarteymið er samstarfsverkefni:
Skólaskrifstofu Suðurlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra.  Einnig hefur sérkennsluráðgjafi leikskóla í Árborg tekið þátt frá upphafi.  Í teyminu eru læknar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, iðjuþjálfi  og sérkennsluráðgjafar.
 
Hverjum má vísa til Greiningarteymis:
1.  Börnum á aldrinum frá fæðingu til tíu ára þar sem grunur er um þroskafrávik (einhvers konar þroskahömlun).
2.  Börnum í leikskóla með greind á tornæmisstigi eða marktæk frávik í hegðun, málþroska, tilfinningaþroska eða félagsþroska - sem þurfa síðar meir sérkennslu í skóla.
 
Hverjir vísa til Greiningarteymis:
Leikskóli, grunnskóli, læknar, hjúkrunarfræðingar og sérfræðingar Skólaskrifstofu Suðurlands.
 
Hvenær er málum vísað til Greiningarteymis:
Ef foreldrar eða ofangreindir aðilar telja að fleiri en einn sérfræðingur þurfi að koma að málum barns. 
 
Barnaverndarmálum er ekki sinnt af Greiningarteyminu.



Til baka