28.9.2007
Lestrarkennsla skv. PT og DI aðferðum
Á fræðslufundinum mun Guðríður Adda kynna kennsluaðferðir við lestrarkennslu byggðar á beinum fyrirmælum (Direct Instruction) og færniþjálfun (Precision Teaching), en þær hafa gefist vel við kennslu barna í lestri, einnig barna með þörf á sérstökum stuðningi.  Sambærilegar aðferðir við stærðfræðikennslu voru kynntar á námskeiðinu Talnaleikni og reikningur á SKS 14. ágúst sl.

Tími: mánudagur 7. janúar 2008 kl. 14-16.
Staður: Skólaskrifstofa Suðurlands, 3. hæð.
Kennari: Guðríður Adda Ragnarsdóttir, kennari og atferlisfræðingur.
Verð: 1.000 kr.

Skráning fer fram á netfanginu alda@sudurland.is eða í síma 480 8240 meðan húsrúm leyfir, eða til 15. nóv. nk.


Hvernig kenni ég nemendum sem eiga í erfiðleikum með að læra að lesa?

   ­

Undanfarin ár hef ég kennt nemendum að lesa sem átt hafa í erfiðleikum með það. Sum þeirra hafa greinst með „lesblindu” og önnur með einhverfu.

Kennsluaðferðirnar sem ég beiti nefnast bein fyrirmæli (Direct Instruction; DI) og hnitmiðuð færniþjálfun (Precision Teaching; PT). Aðferðirnar eru vel þekktar, raunprófaðar og rannsakaðar. Þær fela einnig í sér mælitækni sem sýnir jafnóðum hvað hverjum nemanda fer fram við kennsluna. Kennarinn byggir ákvarðanir sínar á þeim rauntölum.

Ég valdi þessar kennsluaðferðir vegna þess að skólar þar sem þeim er beitt, sýna stöðugan og afgerandi árangur í lestrarkennslu barna með breytilegar þarfir, sjá t.d.  http://www.headsprout.com/,  http://www.morningsideacademy.org/   og  http://www.teachyourchildrenwell.com/ .  Nemendur mínir bæta sig á hliðstæðan hátt.

Aðferðirnar lærði ég í Bandaríkjunum og hef síðan kennt þær á námsskeiðum á Íslandi, í Englandi, Wales, Pólandi, Ítalíu, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

    
Í erindinu mun ég kynna aðalatriði beinna fyrirmæla og hnitmiðaðrar færniþjálfunar í lestrarkennslu, og sýna dæmi af vinnu og framförum nemenda minna með línuritum og örstuttum myndbandsskeiðum.

 

Guðríður Adda Ragnarsdóttir,

atferlisfræðingur og kennari.

 

 

Sjá nánar á íslensku:

Guðríður Adda Ragnarsdóttir (2000a, 8. janúar). Fljúgandi færir nemendur I. Morgunblaðið; menntun, bls. 30 – 31.

Guðríður Adda Ragnarsdóttir (2000b, 15. janúar). Fljúgandi færir nemendur II. Morgunblaðið; menntun, bls. 35 – 36.

Guðríður Adda Ragnarsdóttir (2004). Hvernig getur kennsla verið rannsókn?

  Tímarit um menntarannsóknir, 1, 83 –101.

Guðríður Adda Ragnarsdóttir (2005). Hvernig má fyrirbyggja og leysa vanda í námi og hegðun með færniþjálfuninni Precision Teaching? Stutt kynning á raunprófaðri aðferð til að þjálfa færni, greina, mæla og meta námslega stöðu og spá fyrir um framfarir í námi út frá stöðluðu hröðunarkorti. Í Jón Grétar Sigurjónsson o.fl. (ritstjórar), Hvar er hún nú? Arfleifð atferlisstefnunnar á 21. öld. Bls.176 – 213.




Til baka