
Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi 2009-10
Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi 2009-2010 var haldin í Fjölbrautaskóla Suðurlands miðvikudaginn 10. mars nk. kl. 16:00.
Til leiks mættu 56 nemendur úr 11 sunnlenskum grunnskólum: Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, Flóaskóla, Flúðaskóla, Grunnskóla Bláskógabyggðar, Grunnskólanum á Hellu, Grunnskólanum í Hveragerði, Grunnskólanum Ljósuborg, Hvolsskóla, Laugalandsskóla, Sunnulækjarskóla og Vallaskóla.
Alls tóku þátt 19 nemendur úr 8. bekk, 22 nemendur úr 9. bekk og 15 nemendur úr 10. bekk.
Kennarar úr Fjölbrautaskóla Suðurlands fara yfir verkefnin og má reikna með að niðurstöður liggi fyrir um miðja vikuna. Keppendur fá sendar upplýsingar um niðurstöður. Keppendur í efstu sætum fá boðun á verðlaunaafhendingu þar sem þeir fá afhent verðlaun og viðurkenningar. Þeir fá ekki upplýsingar um í hvaða verðlaunasæti þeir lentu fyrr en á verðlaunaafhendingunni. Staður og tími verðlaunaafhendingar verður auglýstur síðar.
Þátttökuréttur:
Þátttökurétt eiga allir skólar á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands sem hafa unglingastig. Þátttökuskólar geta sent inn einn keppanda úr hverjum árgangi fyrir hvert byrjað 100 nemenda. Dæmi: skóli með 250 nemendur hefur rétt á að senda 3 nemendur úr hverjum árgangi. Skóli með 103 nemendur hefur rétt á senda 2 úr hverjum árgangi. Skóli með 70 nemendur á rétt á að senda 1 úr hverjum árgangi. Hámark keppenda úr hverjum skóla er 4 nemendur úr hverjum árgangi.
Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast Skólaskrifstofu Suðurlands. Skráningu lauk föstudaginn 12. febrúar.
Gott er að nota verkefni frá fyrri keppnum til að æfa sig, en þau má finna hérna.
Skráningablað fyrir Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi 2010:
- pdf form
- word
Til baka
