
Umsóknir í Endurmenntunarsjóð grunnskóla
Umsóknarfrestur um styrki í Endurmenntunarsjóð grunnskóla rennur út 22. febrúar nk.
Styrkir úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2010
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verkefna sem tengjast:
- Færni í upplýsingatækni við kennslu
- Námsmatsaðferðum
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi. Í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um hvers konar endurmenntunartilboð umsækjandi hyggst bjóða, m.a. markmið námsins, stað og tíma, áætlaðan fjölda þátttakenda, skipulag kennslu, stjórnun, ábyrgðarmann og annað það sem máli kann að skipta við mat á umsókn. Einnig skal leggja fram sundurliðaða kostnaðaráætlun. Þær umsóknir einar koma til álita sem sýna fram á að endurmenntunartilboðið mæti þörfum grunnskólans, sé byggt á skólastefnu, aðalnámsskrá, fagmennsku og gæðum. Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds.
Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk verður gerður sérstakur samningur um hvert endurmenntunarverkefni.
Umsóknarfrestur er til 22. febrúar 2010. Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar um Endurmenntunarsjóð grunnskóla veitir Guðfinna Harðardóttir í síma 515 4900 eða í tölvupósti á gudfinna.hardardottir@samband.is.
Til baka
