
Sjónrænt skipulag og Boardmaker Plus 24. feb.
Sjónrænt skipulag og Boardmaker Plus
Námskeið haldið á Skólaskrifstofu Suðurlands, miðvikudaginn 24.febrúar kl. 10.00-12.30
Sjónrænt skipulag er viðurkennd aðferð í vinnu með einhverfum börnum, börnum með ADHD, málþroskaraskanir og aðrar þroskaraskanir. Vinnubrögðin miða að því að gera umhverfi og allar aðstæður í leikskólanum og á heimilinu skýrari og skiljanlegri með það að markmiði að draga úr kvíða og óöryggi og auka sjálfstæði og félagslega færni nemanda.
Á námskeiðinu er þátttakendum kennt að vinna í Boardmaker Plus, setja upp myndrænt dagskipulag, stundaskrár, mánaðarskema og hvernig brjóta má niður kennslustundir í myndrænt skipulag. Farið verður í tilgang, gerð og uppsetningu á félagsfærnisögum.
Þátttakendur þurfa að hafa fartölvu meðferðis og forritið sjálft ef það er til í leikskólanum. Þátttakendur eru hvattir til að koma með verkefni/skipulag úr sínum skóla og fá aðstoð til að setja það upp.
Kennari; Hrafnhildur Karlsdóttir leikskóla-og sérkennsluráðgjafi Skólaskrifstofu Suðurlands
Verð kr. 3.500-
Lágmarksfjöldi þátttakenda 8
Skráing er á netfanginu simenntun@skolasud.is fyrir 22.febrúar n.k.
Til baka
