3.12.2009
ART fræðslufundir fyrir annað starfsfólk grunnskóla

ART FRÆÐSLUFUNDUR FYRIR ANNAÐ STARFSFÓLK GRUNNSKÓLA

Mikilvægt er að sem flestir starfsmenn grunnskólans séu meðvitaðir um hvernig ART virkar. Það hjálpar öllum að halda uppi góðu skólastarfi og nýtist til að bæta samskipti í skólanum.  Þetta hefur reynslan sýnt okkur.  Því hefur verið ákveðið að bjóða öðru starfsfólki grunnskóla en kennurunum upp á sérstakan fræðslufund um ART þjálfun.

Fræðslufundurinn er sambland af kynningu á hugmyndafræðinni, leikjum og verkefnum.  Næsti fræðslufundur er  fimmtudaginn 4. febrúar kl. 14-16 á Skólaskrifstofu Suðurlands (3. hæð).

Um fræðslufundinn sjá meðlimir ART teymisins á Suðurlandi.  Skráning fer fram á netfanginu simenntun@skolasud.is.  Tekið er við skráningum á meðan húsrúm leyfir, en hámarksfjöldi er 25 manns.

Verð: 1.500 kr.



Til baka