30.11.2009
118. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

118. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn fimmtudaginn 26. nóvember 2009 kl. 14:30 að Austurvegi 56, Selfossi.

Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð. Ingvar Pétur Guðbjörnsson boðaði forföll.

Formaður setti fund. Lögð var til breyting á dagskrá, að bætt yrði inn 4. lið um einingabært nám grunnskólanemenda í framhaldsskólum. Samþykkt.

1. Staða skv. fjárhagsáætlun 2009.

Farið yfir stöðu skv. rekstrarreikningi 18.11.2009. Reksturinn er samkvæmt áætlun.

2. Samningur um ART meðferð sem barnaverndarúrræði.

Lagður fram samningur milli Skólaskrifstofu Suðurlands og Fjölskyldusviðs Árborgar, f.h. barnaverndarnefnda á Suðurlandi, um ART meðferð sem barnaverndarúrræði fyrir 12-18 ára börn í vímuefna- eða hegðunarvanda og fjölskyldur þeirra. Samningurinn tryggir ART verkefninu 10 millj. kr. rekstrarfé til tveggja ára, áranna 2010 og 2011. Einungis barnaverndarnefndir geta vísað börnum og fjölskyldum þeirra í ART meðferð samkvæmt samningi þessum. Samningurinn veitir barnaverndarnefndum í Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu aðgang að úrræðinu.

Einnig var lögð fram bókun bæjarstjórnar Árborgar frá 11. nóv. 2009 þar sem bókað var um samhliða samning milli sveitarfélagsins Árborgar, f.h. barnaverndarnefnda á Suðurlandi og Barnaverndarstofu um fjárframlag frá Barnaverndarstofu til verkefnisins. Í bókuninni greinir einnig frá drögum að samningi sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga sendu menntamálaráðuneyti um aðkomu félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis að rekstri ART verkefnisins. Drögin voru lögð fram.

3. Álit menntamálaráðuneytisins um skólagöngu fósturbarna og breytingar á reglugerð um skólaakstur.

Lagt fram og rætt minnisblað Guðjóns Bragasonar lögfræðings Sambands íslenskra sveitarfélaga um álit menntamálaráðuneytis um skólagöngu fósturbarna. Einnig lögð fram breyting á reglugerð um skólaakstur til samræmis við 75. gr. barnaverndarlaga, en nefnd um endurskoðun barnaverndarlaga hefur lagt til þær breytingar að viðtökusveitarfélögum barna sem ráðstafað er í tímabundið fóstur beri að bera allan venjubundinn kostnað af skólagöngu barns, svo sem kostnað vegna skóla og aksturs.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands mótmælir harðlega ofangreindum breytingum og tekur undir sérálit Guðjóns Bragasonar lögfræðings Sambands íslenskra sveitarfélaga í fyrirvara sem hann gerði við tillögur nefndar um endurskoðun barnaverndarlaga. Hann segir m.a. að breytingin feli í sér mjög íþyngjandi skyldur fyrir þau sveitarfélög sem taki við fósturbörnum, sér í lagi geti hún komið hart niður á minni sveitarfélögum. Breytingin fer gegn þeirri meginreglu að sveitarfélögum er ekki skylt að veita íbúum annarra sveitarfélaga þjónustu að kostnaðarlausu.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands skorar á félags- og tryggingamálaráðherra og Alþingi að við endurskoðun barnaverndarlaga nr. 80/2002 verði áfram virt sú meginregla að sveitarfélögum sé ekki skylt að veita íbúum annarra sveitarfélaga þjónustu að kostnaðarlausu.

4. Einingabært nám grunnskólanemenda í framhaldsskólum, sbr. 26. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 og 32. gr. laga um framhaldsskóla nr 92/2008.

Í byrjun yfirstandandi skólaárs fengu framhaldsskólarnir bréf frá menntamála­ráðuneytinu þar sem fram kom að við ákvörðun fjárheimilda árið 2010 sé ekki gert ráð fyrir ígildum vegna nemenda grunnskóla sem stunda nám í einstökum framhaldsskóla­áföngum samhliða grunnskólanámi sínu. Enginn sparnaður er fólginn í því að halda aftur af bráðgerum nemendum í námi. Þeir munu eftir sem áður taka jafn margar einingar með jafn miklum kostnaði fyrir ríkið þegar þau komast í framhaldsskólann, en með bréfi ráðherra er brotið á rétti þeirra sem lögfestur er í ofangreindum lagagreinum. Markmið nýrra laga um leik-, grunn- og framhaldsskóla eru m.a. þau að auka sveigjanleika milli skólastiga og gengur ákvörðun ráðherra þvert á þau markmið.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands skorar á menntamálaráðherra að standa við 26. grein laga um grunnskóla nr. 91/2008 og 32. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og geri nemendum sem lokið hafa grunnskólaprófi í einstökum greinum kleift að hefja nám á framhaldsskólastigi eins og lögin gera ráð fyrir.

 

Fundargerð lesin upp og staðfest.

Fundi slitið kl. 16:10.

Margeir Ingólfsson

Þórunn Jóna Hauksdóttir

Kristín Hreinsdóttir




Til baka