
4. aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands 2009
Fundargerð
4. aðalfundar
Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn 15. október 2009 á Hornafirði
1. Setning
Margeir Ingólfsson, formaður, setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna. Ræddi hann um síðasta starfsár sem einkenndist af þeim hremmingum sem skekið hefur þjóðlífið. Gerði hann fjárhagsramma skrifstofunnar að umræðuefni og þær aðgerðir sem stjórnendur þurftu að ráðast í til að ná endum saman. Skerða þurfti vinnutíma, semja upp á ný um launakjör og fleira. Áfram verði gætt aðhalds og á nýju ári er gert ráð fyrir óbreyttum framlögum sveitarfélagsins. Margt er hulið óvissu, m.a. er varðar fjármögnun ART verkefnisins. Hvatti hann sérstaklega til þess að fólk kynnti sér úttekt félagsvísindastofnunar HÍ á ART verkefninu.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður tilnefndi þá Árna Þorvaldsson og Reyni Arnarson sem fundarstjóra og Hjalta Þór Vignisson sem fundarritara og var það samþykkt samhljóða.
3. Kosning í starfsnefndir
Lögð var fram svohljóðandi tillaga stjórnar að kjörbréfa- og kjörnefnd:
Aðalmenn
Gunnar Þorgeirsson, Grímsnes- og Grafningshreppi
Aldís Hafsteinsdóttir, Hveragerðisbæ
Gunnlaugur Grettisson, Vestmannaeyjabæ
Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Rangárþingi ytra
Gylfi Þorkelsson, Sveitarfélaginu Árborg
Jóna Sigurbjartsdóttir, Skaftárhreppi
Reynir Arnarson, Sveitarfélaginu Hornafirði
Varamenn
Margeir Ingólfsson, Bláskógabyggð
Páll Stefánsson, Sveitarfélaginu Ölfusi
Páll Scheving, Vestmannaeyjabæ
Kristín Aradóttir, Rangárþingi eystra
Margrét Katrín Erlingsdóttir, Sveitarfélaginu Árborg
Þórhildur Jónsdóttir, Mýrdalshreppi
Var tillagan samþykkt samhljóða og tók nefndin þegar til starfa.
4. Skýrsla framkvæmdastjóra
Kristín Hreinsdóttir flutti ársskýrslu Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir skólaárið 2008-2009. Þar kom m.a. fram þróun nemendafjölda og starfsmanna á skrifstofunni. Einnig ræddi hún um ýmsa þjónustuþætti, s.s. sálfræðiráðgjöf, ráðgjöf vegna talmeina, leikskólaráðgjöf og endurmenntun og fræðslu til starfsmanna skóla á starfssvæðinu.
5. Lögmæti fundarins skv. niðurstöðu kjörbréfanefndar
Gunnar Þorgeirsson, formaður kjörbréfa- og kjörnefndar kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir kjörbréfum. Alls voru 42 kjörnir fulltrúar. Gild kjörbréf eru 38, en alls voru 28 aðalfulltrúar og 10 varamenn mættir. Fundurinn úrskurðast því lögmætur.
6. Afgreiðslumál
i) Endurskoðaðir reikningar
Framkvæmdastjóri, kynnti ársreikning fyrir árið 2008.
ii) Tillaga að fjárhagsáætlun
Framkvæmdastjóri kynnti fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir árið 2010.
Fundarstjóri gaf orðið laust.
Til máls tók Margrét K. Erlingsdóttir.
Fundarstjóri bar upp endurskoðaða reikninga og tillögu að fjárhagsáætlun undir atkvæði.
Samþykkt samhljóða.
7. Kosningar
i) Kosning 3 fulltrúa í stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands og 3 varamanna
Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands
Aðalmenn
Margeir Ingólfsson, form. Bláskógabyggð
Þórunn Jóna Hauksdóttir, varaform. Sveitarfélaginu Árborg
Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Rangárþingi ytra
Varamenn
Gylfi Þorkelsson, Sveitarfélaginu Árborg
Margrét Sigurðardóttir, Flóahreppi
Sif Hauksdóttir, Mýrdalshreppi
Samþykkt samhljóða.
ii) 2 skoðunarmenn ársreikninga og 2 varamenn
Skoðunarmenn
Aðalmenn
Jón Valgeirsson, Grímsnes- og Grafningshreppi
Elín Einarsdóttir, Mýrdalshreppi
Varamenn
Herdís Þórðardóttir, Hveragerði
Margrét Sigurðardóttir, Flóahreppi
Samþykkt samhljóða.
8. Almennar umræður
Fundarstjóri gaf orðið laust.
Engin kvaddi sér hljóðs.
Margeir Ingólfsson, formaður, þakkaði traustið og sleit fundi kl. 14.10
Til baka
