20.10.2009
117. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

117. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn miðvikudaginn 14. okt. 2009 kl. 19:00 á Hótel Höfn, Hornafirði.

Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir, Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.

Formaður setti fund og bauð viðstadda velkomna.

1. Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands á Höfn í Hornafirði 2009.

Farið yfir dagskrá aðalfundar og fundurinn undirbúinn.

2. Kynning á úttekt á ART verkefninu á Suðurlandi.

Farið var yfir skýrslu um mat á framkvæmd og ávinningi ART verkefnisins á Suðurlandi sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir menntamálaráðuneytið.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands fagnar útkomu skýrslunnar og því að óháður aðili hafi lagt mat á verkefnið.

Niðurstaða matsaðila er mikil ánægja með ART verkefnið hjá öllum þeim sem að verkefninu koma og þjónustunnar njóta. Samkvæmt skýrslunni er árangur af verkefninu ótvíræður.

Í skýrslunni kemur fram mikilvægi þess að halda úti ART-teyminu til að tryggja áframhaldandi útbreiðslu og árangur verkefnisins.

Skýrslan er aðgengileg á heimasíðum menntamálaráðuneytisins og Skólaskrifstofu Suðurlands.

 

Fundargerð lesin upp og staðfest.

Fundi slitið kl. 19:20.




Til baka