20.10.2009
116. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

116. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn föstudaginn 25. sept. 2009 kl. 12:00 á Skólaskrifstofu Suðurlands, Austurvegi 56.

Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir, Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Fjárhagsáætlun 2010.

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2010 fyrir Skólaskrifstofu Suðurlands.

Ekki er gert ráð fyrir neinni hækkun þjónustugjalda til sveitarfélaganna. Engar fastar prósentuhækkanir eru reiknaðar á rekstrarliði, heldur er tekið mið af líklegri niðurstöðu ársins 2009. Laun hækka ekki skv. kjarasamningum, en gert er ráð fyrir óskertum launum starfsfólks 2010. Ekki er gert ráð fyrir hækkun stjórnarlauna. Gert er ráð fyrir hækkun rekstrarleigu bifreiða í samræmi við líklega niðurstöðu ársins 2009. Óhagstætt gengi veldur auknum kostnaði við rekstrarleigu bifreiða.

Reiknað er með að þjónustugjöld til sveitarfélaga verði 82.120 þús. kr. Gjöld samtals verði tæplega 107 millj. kr. (84.220 þús. kr. án ART verkefnis). Rekstargjöld eru áætluð 108.413 þús. kr. og áætlaður rekstrarhalli því tæpar 1.500 þús. kr. Fyrirvari er gerður vegna óvissu í efnahagsmálum.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands samþykkir fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir árið 2010. Áætlunin verður lögð fyrir aðalfund Skólaskrifstofu Suðurlands 15. okt. nk. til staðfestingar.

Fjárhagsáætlun vegna ART verkefnis er gerð með fyrirvara um óvissu í efnahagsmálum og óvissu um afgreiðslu menntamálaráðuneytis og Barnaverndarstofu um framlög til verkefnisins.

Rekstrartekjur verkefnisins eru áætlaðar 21.000 þús. kr. Rekstargjöld eru áætluð 22.435 þús. kr. og rekstrarhalli því áætlaður u.þ.b. 1.450 þús. kr.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands samþykkir fjárhagsáætlun ART verkefnisins fyrir árið 2010. Áætlunin verður lögð fyrir aðalfund Skólaskrifstofu Suðurlands 15. okt. nk. til staðfestingar.

2. Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands og ársþing SASS 15. og 16. október 2009 á Höfn í Hornafirði.

Farið var yfir dagskrá aðalfundar Skólaskrifstofu Suðurlands. Næsti fundur stjórnar ákveðinn kl. 18:30 miðvikudaginn 14. október á Höfn í Hornafirði.

Fundargerð lesin upp og staðfest.

Fundi slitið kl. 17:00.




Til baka