29.9.2009
Þróunarsjóður námsgagna auglýsir eftir umsóknum


Þróunarsjóður námsgagna auglýsir eftir umsóknum um styrki í sjóðinn.

Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.

Sérstök áhersla er lögð á námsgögn sem tengjast lestrarkennslu og læsi í víðum skilningi.  Sjá nánar á slóðinni:
http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Auglysingar/allar/nr/5117

Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2009.

Til baka