21.9.2009
Námskeið fyrir leikskóla 2009-2010

Námskeið í boði næsta vetur

Námskeiðin eru frá 1 til 6 klukkustundar löng og geta leikskólar pantað námskeið í samráði við leikskólaráðgjafa Skólaskrifstofu Suðurlands. Hægt er að semja um að námskeiðið taki ákv.tíma, allt eftir þörfum leikskólans.  Ef kennari kemur frá Skólaskrifstofu eru námskeiðin endurgjaldslaus séu þau á dagvinnutíma. Stundum er annar kennari með og þá þarf skólinn að greiða þeim kennara sérstaklega.

Leikskólar geta tekið sig saman um námskeið og er það þá gert í samráði við leikskólaráðgjafa Skólaskrifstofu Suðurlands.

Eftirtalin námskeið eru í boði:

„Deildarstjóri í leikskóla“
Farið er yfir starfssvið deildarstjóra og starfslýsingar, stöðu deildarstjórans innan leikskólans og stjórnskipulag skólans. Fjallað er m.a. fjallað um móttöku nýrra starfsmanna og leiðbeiningar til starfsfólks deildarinnar, ábyrgð deildarstjórans, stjórnunaraðferðir,  skipulagningu starfsins og kennsluáætlanir.  Þá er fjallað um samstarfsaðila og mikilvægi góðrar samvinnu við foreldra viðtöl.  Einnig er farið yfir þá ábyrgð  sem felst í  því að framfylgja meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna

Námskeiðið er í formi fyrirlestra og umræðna.

 


„Félagsþroski og vinatengsl barna á leikskólaaldri“

Farið verður yfir helstu þætti í félagsþroska barna og þróun leiksins.  Þá verður fjallað um hvað er félagshæfni og hvernig við getum kennt börnum færni í samskiptum við börn og fullorðna. Á námskeiðinu verður einkum lögð áhersla vinatengsl barna, hvernig við hjálpum þeim að rækta vináttuna og hve mikilvægt það er hverju barni að tilheyra hópi og eiga vin. 



Umhyggja í leikskólastarfi

Farið er stuttlega yfir kenningar um umhyggju í skólastarfi s.s. kenningar Nel Noddings, Beritar Bae, R. Lee Smith og Valborgar Sigurðardóttur.  Þá verður fjallað ýtarlega um hvar og hvernig við notum umhyggju í starfi með börnum í leikskóla.

 


„Frjálsi leikurinn, kenningar, mikilvægi og viðhorf kennara“

Fjallað um helstu kenningar um leik, hugmyndir þeirra Birgittu Knudsdotter Olofsson, Berit Bae og Valborgar Sigurðardóttur.  Um mikilvægi leiks í þroska barna og tegundir leikja frá 0-6 ára.  Þá er farið í  hvað hefur áhrif á leik barna í leikskólanum og einnig um mikilvægi þess að hafa gott leikefni sem hæfir aldri hvers og eins.  Rætt verður um mikilvægi þess að starfsfólk hafi innsýn í þróun leikja, skilning á leik barna og samskipti barna í leik.  Einnig verður fjallað um þátttöku starfsfólks í leiknum – vinnuna á gólfinu og hvernig við getum hjálpað barni inn í leik með öðrum. 


Námskeiðið er í formi fyrirl
estra, verkefna og skoðuð eru
myndbönd sem sýna leik barna og afskipti fullorðinna í leiknum. 

 

 


„Samskipti í leikskóla“

Berit Bae er norskur lektor í uppeldisfræði og hefur gert rannsóknir á samskiptum fullorðinna og barna í leikskólum.  Hún kemst að því í rannsókninni að viðhorf, viðmót og öll framkoma starfsmanna gagnvart börnum og starfsfélögum skapi forsendur fyrir þróunarmöguleikum beggja þessara aðila.  

Fjallað verður um þau atriði sem Bae segir að skapi grundvallarforsendur fyrir því að börn og fullorðnir geti þróað sig í leik og starfi, en þau eru; nálægð, viðurkenning, skilgreiningarvald, ígrundun, staðfesting og tengsl við hvert barn.


 

”Litlu börnin í leikskólanum”

Fjallað er um breytingar í umhverfi leikskólanna varðandi litlu börnin, þau eru nú mun fleiri, í lengri vistun, þetta kallar á aukna þekkingu. Fjallað verður um viðhorf starfsfólks til litlu barnanna og hvernig við notum umhyggju á faglegan hátt í starfi með ungum börnum.  Þá verður farið yfir hvaða markmið er raunhæft að setja  í vinnu á yngstu deild og hvernig við vinnum námskrá fyrir 0-3 ára börn þar sem ekki er hægt að notast við sama skipulag á deild fyrir 0-3 ára og 4-6 ára, uppfylling á grunnþörfunum tekur meiri tíma. Þá er fjallað um grunnþarfir og nauðsyn þess að gefa þeim góðan tíma, varðandi svefn, matartíma o.s.frv.  Farið verður yfir hvað þarf að þjálfa hjá ungum börnum og hvers vegna, hvaða efni er gott að notast við.  

 


"Tákn með tali" 
Fjallað er lauslega um hugmyndafræði að baki tákna með tali og eðli táknanna.  Innlögn tákna og æfingar.  Þátttakendur fá/finna sér táknnöfn.  Innihald námskeiðanna er mismunandi eftir því hvort skólinn er að taka inn tákn með tali í fyrsta skipti eða hvort um er að ræða viðbótarnámskeið.
 

 


„Boardmaker Plus“

Þátttakendur læra að nota forritið Boardmaker Plus.  Myndrænt skipulag og sjónrænar stundaskrár eru viðurkenndar aðferðir til að auka sjálfstæði og félagslega færni nemenda.  Sjónrænt kerfi er sett upp í öllum þeim aðstæðum þar sem nemandinn skilur ekki, sýnir kvíða, óöryggi eða ósjálfstæði.  Sé það ger veit nemandinn nákvæmlega hvað hann á að gera, hversu lengi og hvað tekur við að því loknu.  Þannig drögum við úr munnlegum fyrirmælum og aukum sjálfstæði nemandans. 

Á námskeiðinu er þátttakendum kennt að setja upp  myndrænt dagskipulag, stundaskrár, mánaðarskema og hvernig brjóta má niður kennslustundir í myndrænt skipulag.  Þátttakendur þurfa að hafa fartölvu meðferðis og forritið sjálft, sé þess kostur.

 

 


„Gæði í leikskólastarfi“

Fjöldi rannsókna hefur verið gerður á til að meta gæði í skólastarfi og til að finna hvað einkennir þá skóla sem teljast til „gæðaskóla“.  Flestar kenningar komast að þeirri niðurstöðu að það séu skólar sem hafa fagmenntaða kennara, fámenna barnahópa, lykilpersónu fyrir hvert barn, jákvæða umönnun og stöðugleika í sarfsmannahaldi.  Á námskeiðinu er fjallað um þessa þætti og hvernig skólar geta bætt gæði í skólastarfi, lið fyrir lið.


 

„Einu sinni voru tveir tómatar“ - um húmor í leikskólastarfi.

Fjallað er um rannsóknir sem gerðar hafa verið á húmor í skólastarfi og á þróun húmors hjá börnum.  Í erindinu er sýnt fram á að þróun húmors helst í hendur við félagsþroska og félagsfærni hjá börnum.

Þeir sem vinna í leikskóla geta verið að með börnunum í allt að 8 klst. á dag.   Það er því eins gott að ákveða strax að ætla einfaldlega að njóta þess.  Flestir starfsmenn eru glaðir og kátir og gefa endalaust af sér til barna og samstarfsfólks og snúa hlutunum upp í grín ef illa gengur.  Aðrir eru stundum  fúlir, þreyttir, argir og sjá ekki gleðina við að vinna með börnum og láta ergelsi í ljós.

Fjallað verður um það hvernig starfsfólk leikskólans mætir húmor barnanna á mismunandi hátt, t.d. þegar góður brandari ætlar allt um koll að keyra.  Fjallað verður um hvernig börn nota húmor, tegundir húmors og hvort og þá hvernig starfsfólk í leikskóla getur notað húmorinn sem tæki til að bæta skólastarfið. 




Til baka