11.9.2009
115. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

115. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn fimmtudaginn 10. sept. 2009, kl. 14:30 á Skólaskrifstofu Suðurlands, Austurvegi 56.

Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir, Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.

1. Staða skv. fjárhagsáætlun 2009.

Farið var yfir rekstrarreikning og er staða hans nokkurn veginn í samræmi við fjárhagsáætlun 2009.

2. Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands og ársþing SASS 15. og 16. október 2009.

Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands og ársþing SASS hafa verið ákveðin 15. og 16. október á Höfn í Hornafirði. Lögð fram drög að dagskrá ársþings SASS og tillaga að dagskrá aðalfundar Skólaskrifstofu Suðurlands.

Drögin samþykkt eins og þau liggja fyrir.

3. Ályktun fjárhagsnefndar.

Lögð fram ályktun fjárhagsnefndar SASS, en þar segir:

„Nefndin er sammála um að nauðsynlegt sé að skýra hlutverk nefndarinnar í samþykktum SASS og jafnframt að setja þyrfti inn samsvarandi ákvæði í samþykktir annarra stofnana um sameiginlega fjárhagsnefnd. Nefndin telur slíkt forsendu þess að störf hennar þjóni einhverjum tilgangi sérstaklega með tilliti til efnahagsástandsins í dag og rekstrarumhverfis sveitarfélaganna.“

Í grein 4.4. í samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands segir:

Á aðalfundi skulu kosnar starfsnefndir fundarins; kjörbréfa- og kjörnefnd sem fer yfir kjörbréf fulltrúa og gerir tillögur um kjör í stjórn og nefndir samkvæmt þessari grein, fjárhagsnefnd, sem fjallar um fjárhagsáætlun og önnur fjármál skrifstofunnar, allsherjar­nefnd, og auk þess málefnanefndir sem fjalla um einstök mál sem eru til umræðu.“

Í grein 4.5. í sömu samþykktum segir:

„Aðalfundur kýs menn í starfsnefndir sem starfa að ákveðnum málefnum milli funda, samkvæmt sérstakri samþykkt aðalfundarins.“

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands bendir á heimildir í samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands um kosningu í fjárhagsnefnd og störf hennar.


4. Fjárhagsáætlun 2010.

Farið yfir forsendur fyrir fjárhagsáætlun 2010 og rætt um hugsanlegar sparnaðar­aðgerðir. Fjárhagsáætlun 2009 var rúmu 1% lægri en áætlun og niðurstaða 2008. Því marki var náð með viðbótarsamningum við starfsfólk Skólaskrifstofu um skertan vinnutíma á haustönn, lækkun launa framkvæmdastjóra, tímabundnum niðurskurði á ráðningarsamningsbundinni endurmenntun og öðrum almennum sparnaðaraðgerðum.

Stefnt er að því að fjármögnun ART verkefnisins verði sveitarfélögum á Suðurlandi að kostnaðarlausu að öðru leyti en því að vinnuframlag framkvæmdastjóra Skólaskrifstofunnar er lagt fram á kostnað sveitarfélaganna og sveitarfélögin sjá um meiri partinn af forvarnarþættinum heima í héraði í formi vinnu starfsmanna skólanna. Unnið er að því að tryggja áframhaldandi framlag frá menntamálaráðuneyti til að kosta forvarnar-, ráðgjafar- og handleiðsluþátt verkefnisins. Einnig er unnið að þríhliða samningi milli Barnaverndarstofu, Árborgar f.h. barnaverndarnefnda á Suðurlandi og Skólaskrifstofu Suðurlands sem tryggt gæti fjármögnun meðferðarstarfsins.

5. Ársskýrsla skólaárið 2008-2009.

Ársskýrsla fyrir skólaárið 2008-2009 lögð fram og staðfest. Stjórnin þakkar fyrir góða og ítarlega ársskýrslu.

Næsti fundur stjórnar ákveðinn föstudaginn 25. september 2009 kl. 12:00.

Fundargerð lesin upp og staðfest.

Fundi slitið kl. 17:00.




Til baka