11.5.2009
114. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

114. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn mánudaginn 11. maí 2009 kl. 14:00 á Skólaskrifstofu Suðurlands, Austurvegi 56.

Mætt: Margeir Ingólfsson, formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð. Ingvar Pétur Guðbjörnsson boðaði forföll.

Formaður stjórnar óskar eftir þeirri dagskrárbreytingu að inn komi nýr liður, liður 3 um úttekt á ART verkefninu. Samþykkt samhljóða.

1. Tillögur fjárhagsnefndar SASS vegna samdráttar 2009.

Tillögur fjárhagsnefndar kynntar og ræddar.

2. Endurskoðuð fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir fjárhagsárið 2009.

Framkvæmdastjóri lagði fram fjárhagsstöðu skrifstofunnar 28. apríl 2009 og endurskoðaða fjárhagsáætlun ársins 2009.

Skornir hafa verið niður allir þeir liðir sem framkvæmdastjóri telur unnt að skera niður. Ekki verður nýtt hálft stöðugildi sérfræðings sem skrifstofan hefur haft til ráðstöfunar og nýtt fyrir verktaka eftir því sem þörf er til að ekki myndist of langir biðlistar. Laun framkvæmdastjóra lækka um 7,5%. Ráðningarkjör annarra starfsmanna verða skert um 4-5% á ársgrundvelli. Dregið verður m.a. verulega úr innkaupum, endurmenntun starfsmanna og aðhalds gætt á öllum sviðum rekstrarins. Eftir breytingar eru gjöld alls áætluð tæplega 98.420 þús. kr., eða tæpar 83.500 þús. kr. án ART verkefnis. Jafngildir það 1,7% lækkun miðað við rekstrarniðurstöðu (og áætlun) fjárhagsársins 2008. Sá fyrirvari er gerður á áætluninni að spár um þróun gengis gangi eftir, þá sérstaklega m.t.t. rekstrarleigusamninga.

Lögð voru fram:

(a) drög að viðbótarsamningi við ráðningarsamning sérfræðinga.

(b) minnisblað um sparnaðaraðgerðir hjá Skólaskrifstofu Suðurlands.

(c) viðauki við viðauka í ráðningarsamningi framkvæmdastjóra um endurmenntun.

Leitast hefur verið við að vinna sparnaðartillögur í samráði við starfsmenn skrifstofunnar.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands þakkar starfsmönnum skrifstofunnar og framkvæmdastjóra góða vinnu og ábyrgar tillögur við endurskoðun fjárhagsáætlunar.

Endurskoðuð fjárhagsáætlun 2009 samþykkt samhljóða. Áætlunin verður kynnt fjárhagsnefnd SASS.

3. Úttekt á ART verkefninu

Tilkynnt var í byrjun síðustu viku að Félagsvísindastofnun Íslands hefði hafið úttektarvinnu vegna ART verkefnisins á Suðurlandi. Tekin verða viðtöl og upplýsingum safnað á næstu dögum. Niðurstöður ættu að liggja fyrir í haust.

Fundargerð lesin upp og staðfest. Fundi slitið kl. 15:15.

Margeir Ingólfsson
Þórunn Jóna Hauksdóttir
Kristín Hreinsdóttir




Til baka