17.4.2009
3. aðalfundur SKS 20. og 21. nóv. 2008

Fundargerð 3. aðalfundar Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn 20. og 21. nóvember 2008 á Hvolsvelli

Setning

Margeir Ingólfsson formaður stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands setti fundinn og ræddi helstu verkefni Skólaskrifstofu Suðurlands. Ný lög voru sett um grunn, leik- og framhaldsskóla, en reglugerðir vantar ennþá. ART verkefnið er eitt mikilvægasta verkefnið sem unnið er af SKS. Hann þakkar stjórn og framkvæmdastjóra fyrir vel unnin störf og samstarf á árinu.

Formaður tilnefndi Elvar Eyvindsson og Eydísi Indriðadóttur sem fundarstjóra og Ágúst Inga Ólafsson og Þuríði Halldóru Aradóttur sem fundarritara.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Í lok máls síns fól formaður fundarstjórum stjórn fundarins.

Kosning kjörbréfa- og kjörnefndar.

Lögð var fram svohljóðandi tillaga stjórnar SASS að kjörbréfa- og kjörnefnd:

Gunnar Þorgeirsson formaður Grímsnes og Grafningshreppi

Gylfi Þorkelsson, Árborg

Ingvar P. Guðbjörnsson ,Rangárþing ytra

Aldís Hafsteinsdóttir, Hveragerðisbær

Gunnlaugur Grettisson Vestmannaeyjabær

Jóna Sigurbjartsdóttir, Skaftárhreppi

Lögð var fram svohljóðandi tillaga stjórnar SASS að fjárhagsnefnd:

Ragnheiður Hergeirsdóttir, form. Árborg

Ólafur Áki Ragnarsson, Sveitarfélagið Ölfus

Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri Flóahrepps

Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Hrunamannahrepps

Herdís Þórðardóttir, Hveragerðisbær

Tillögurnar voru samþykktar samhljóða.

Skýrsla framkvæmdastjóra/ársskýrsla

Kristín Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri flutti skýrslu sína. Ingvar P. Guðbjörnsson kom inn í stjórnina á árinu í stað Björgvins Bjarka Jóhannessonar, sem flutti af svæðinu. Kristín fór yfir starfsmannahald á skrifstofu SKS en breytingar hafa verið þar á árinu. Jafnframt fór hún yfir lagabreytingar sem gefa SKS aukið svigrúm. Starfstöðvar eru á Selfossi, Hvolsvelli og Laugarási. Grunnskólar á starfssvæði SKS eru 14 með 2.740 nemendur, leikskólar eru 19 með 1.040 nemendur en leikskólum fækkaði um 1 frá síðasta skólaári. Aukið afl er sett í þróunarverkefni. Kristín greindi frá helstu tilvísunarástæðum til sérkennslu- og kennsluráðgjafa og talmeina. Hún ræddi helstu verkefni sérfræðinga SKS auk annarra verkefna á árinu eins og stóru upplestrarkeppnina, stærðfræðikeppnina og ART verkefnið. Hún lýsti því yfir að ART verkefnið þarfnast fjármagns og hvatti fundarmenn til að styðja áframhaldandi stuðning ríkisins við það.

Niðurstaða kjörnefndar um lögmæti fundarins

Ingvar P. Guðbjörnsson varaformaður nefndarinnar kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir kjörbréfum. Alls voru mættir 33 aðalfulltrúar og 6 varafulltrúar. Gild kjörbréf eru 39. Fundurinn úrskurðast því lögmætur.

Afgreiðslumál

Tillaga til breytinga á samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands

Samþykktir Skólaskrifstofu Suðurlands

Breytingarnar varða liði 1.2 og 6.2 og eru skáletraðar í texta.

1. Markmið og hlutverk

1.2

Verkefni SKS eru eftirfarandi:

a) Greiningar og ráðgjöf samkvæmt 40. grein grunnskólalaga nr. 91/2008 og 21.-23. gr. laga um leikskóla sbr. lög nr. 90/2008, mat og eftirfylgd skv. sömu lögum og lagagreinum.

b) Skýrslugerð og upplýsingagjöf til skóla, sveitarstjórna og annarra opinberra aðila.

c) Umsjón með gagna- og upplýsingasafni fyrir skólana.

d) Umsjón með endurmenntun fyrir kennara í samvinnu við háskólastofnanir á uppeldissviði, námskeiðahald fyrir starfsfólk grunnskólanna og leikskólanna og aðstoð við þróunar- og nýbreytnistarf í grunnskólunum og leikskólum.

e) Eftirlit og aðstoð við Sérdeild Suðurlands.

f) Umsjón með rekstri ART-verkefnis á Suðurlandi, sem innifelur meðferð fyrir börn með tilfinninga- og hegðunarraskanir, þjálfun og handleiðslu starfsfólks skóla, upplýsingagjöf og fræðslu sem snýr að verkefninu.

g) Heimild til að veita framhaldsskólum á svæðinu þjónustu skv. 34. gr. laga um framhaldsskóla frá 2008, enda hafi verið gerður þjónustusamningur þar um.

6.2

Allur kostnaður vegna verkefna sem falla undir lið 1.2.g skal innheimtur með þjónustugjöldum.

Umræður

Margrét Erlingsdóttir benti á ósamræmi í tillögunum. Skilgreiningu vantar og lagði til breytingatillögu á lið 1.2. þar sem bætt yrði inn frekari skilgreiningu. Svohljóðandi málsgrein bætist við lið 1.2 Rekstur verkefnisins verði ekki fjármagnaður með framlagi sveitarfélaganna sbr. grein 6.1

Breytingatillagan borin undir atkvæði og samþykkt.

Ragnheiður Hergeirsdóttir tók til máls og spurði um það hvernig skólaskrifstofan sæi fyrir sér að bæta þessum verkefnum við í tengslum við framhaldsskólana.

Margeir Ingólfsson sagði að til þess að fylgja þessu eftir þyrfti að fjölga starfsmönnum. Ekki væri unnt að sinna þessu með því starfsfólki sem fyrir er. Framhaldsskólar hafi óskað eftir kynningu á ART verkefninu.

Tillaga til breytinga á samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands með áorðnum breytingum borin undir atkvæði og samþykkt.

Endurskoðaður ársreikningar 2007

Kristín Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri fór yfir ársreikning SKS og skýrði hann. Ársreikningi vísað til fjárhagsnefndar.

Fjárhagsáætlun 2009

Kristín Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri fór yfir fjárhagsáætlun SKS 2009 og skýrði hana. Áætluninni vísað til fjárhagsnefndar.

Ragnheiður Hergeirsdóttir formaður fjárhagsnefndar lagði fram tillögu nefndarinnar vegna fjárhagsáætlunar SOS fyrir árið 2009.

1. Launaliðir verði óbreyttir frá áætlun 2008.

2. Annar rekstrarkostnaður verði óbreyttur frá fyrra ári.

3. Í ljósi mikillar óvissu í efnahagsmálum er lagt til að endurskoðun fjárhagsáætlunar fari fram eftir fyrsta ársfjórðung ársins 2009. Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands veiti stjórn Skólaskrifstofu og fjárhagsnefnd umboð til að afgreiða endurskoðaða fjárhagsáætlun.

4. Lagt er til að ársreikningur 2007 sem undirritaður hefur verið stjórn, endurskoðendum og skoðunarmönnum verði samþykktur.

Ragnheiður Hergeirsdóttir

Herdís Þórðardóttir

Margrét Sigurðardóttir

Ísólfur Gylfi Pálmason

Ársreikningar 2007, Fjárhagsáætlun 2009 og tillaga fjárhagsnefndar bornar undir atkvæði. Samþykktar samhljóma.

Margeir Ingólfsson, formaður tók til máls og sagði að Skólaskrifstofan væri bundin af samningum og spurði hvað stjórnin ætti að gera ef ekki ætti að gera neinar breytingar á fjárhagsáætlun frá árinu 2008. Áhersla á að skerða ekki þjónustu við börn og ungmenni.

Ingvar G. Ingvarsson, oddviti ræddi um mat á skólastarfi og hvort Skólaskrifstofan gæti tekið þau verkefni að sér a.m.k. fyrir minni skólana.

Tillaga fjárhagsnefndar borin undir atkvæði og

samþykkt með 14 atkvæðum gegn 12.

Kosningar

i) 3 fulltrúar í stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands og 3 varamenn.

Formaður kjörnefndar lagði fram tillögu atkvæðisbærra fulltrúa á fundinum:

Aðalmenn

Margeir Ingólfsson, form. Bláskógabyggð

Þórunn Jóna Hauksdóttir, varaf. Árborg

Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Rangárþing ytra

Varamenn

Böðvar Bjarki Þorsteinsson, Árborg

Margrét Sigurðardóttir, Flóahreppi

Sif Hauksdóttir, Mýrdalshreppur

ii) 2 skoðunarmenn ársreikninga og 2 varamenn.

Formaður kjörnefndar lagði fram tillögu atkvæðisbærra fulltrúa á fundinum:

 

Aðalmenn

Elín Einarsdóttir, Mýrdalshreppi

Margét Sigurðardóttir, Flóahreppi

Varamenn

Herdís Þórðardóttir, Hveragerði

Sigurður Jónsson, Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Athugasemd var gerð við tilnefningu Margrétar Sigurðardóttur, Flóahreppi þar sem hún er sett sem varamaður í stjórn og skoðunarmaður.

Hlé var gert á fundi og ný tillaga borin upp.

Ingvar P. Guðbjörnsson, formaður kjörnefndar lagði fram nýja tillögu:

Aðalmenn

Elín Einarsdóttir, Mýrdalshreppi

Herdís Þórðardóttir, Hveragerði

Varamenn

Sigurður Jónsson, Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Jón G. Valgeirsson, Grímsnes- og Grafningshreppi

Tillagan borin upp og samþykkt.

Margeir Ingólfsson, formaður tók til máls og þakkaði fundarmönnum fyrir fundinn.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:35




Til baka