
113. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
113. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn mánud. 16. mars 2009, kl. 13:00 á Skólaskrifstofu Suðurlands, Austurvegi 56.
Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Margrét Sigurðardóttir varamaður (sem varamaður Þórunnar Jónu Hauksdóttur og Böðvars Bjarka Þorsteinssonar) og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
1. Ársreikningur 2008.
Lagður var fram ársreikningur Skólaskrifstofu Suðurlands vegna ársins 2008. Farið var yfir reikninginn og hann síðan samþykktur með undirritun. Rekstrarniðurstaða ársins 2008 er neikvæð um 265 þús. kr. miðað við fjárhagsáætlun 2008. Handbært fé frá rekstri var tæpar 10,2 millj. kr. Rekstartekjur alls voru tæpar 116 millj. kr. og rekstargjöld alls tæplega 117 millj. kr. Rekstrartap án fjármunatekna og fjármagnsgjalda er rúm 1 millj. kr.
2. Fjármál og verkefnastaða.
Í ljósi þess að fjárhagsnefnd hefur ekki skilað niðurstöðum sínum hafa tillögur um forgangsröðun verkefna ekki verið mótaðar að fullu. Í byrjun mars voru 102 mál á biðlista sérfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands á móti 41 á sama tíma árið 2008. Ástæðurnar eru nokkrar. Mikil fjölgun hefur orðið á tilvísunum til talmeinafræðings og eins hefur fjölgað mikið tilvísunum til kennsluráðgjafa. Mál taka orðið lengri tíma en áður vegna aukinnar eftirfylgdar.
Farið var yfir stöðu rekstrarreiknings eins og hann liggur fyrir 13. mars 2009 og borið saman við fjárhagsáætlun.
3. Stærðfræðikeppnin og Stóra upplestrarkeppnin 2009.
Skráningu er lokið í stærðfræðikeppni grunnskóla. Alls eru 61 nemandi skráður til keppni; 19 úr 10. bekk, 19 úr 9. bekk og 23 úr 8. bekk. Allir skólar á starfssvæði skólaskrifstofunnar sem hafa unglingastig eru skráðir til keppni nema einn.
Fyrsta lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar, fyrir uppsveitir og Flóa, var haldin í Árnesi miðvikudaginn 11. mars. Keppnin tókst vel og var hátíðleg að vanda. Lokahátíð í Rangárvallasýslu og V-Skaftafellssýslu verður mánudaginn 23. mars í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri og lokahátíð fyrir Árborg og Hveragerði verður miðvikudaginn 25. mars í Sunnulækjarskóla. Að venju er keppnin vel styrkt frá fyrirtækjum og stofnunum, auk þess sem margir leggja fram vinnuframlag til að keppnirnar geti heppnast sem best.
Næsti fundur sem vera átti 14. apríl fellur niður og verður næsti fundur boðaður með dagskrá.
Fundargerð lesin upp og staðfest. Fundi slitið kl. 14:30.
Margeir Ingólfsson I
Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Margrét Sigurðardóttir
Kristín Hreinsdóttir
Til baka
