
112. stjórnarfundur
112. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn mánudaginn 9. febrúar 2009 kl. 14:00 á Skólaskrifstofu Suðurlands, Austurvegi 56.
Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Böðvar Bjarki Þorsteinsson (sem varamaður Þórunnar Jónu Hauksdóttur), Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum. Formaður gerði tillögu um dagskrárbreytingu, að inn komi nýr liður nr. 4 sem er tillaga að gjaldskrá fyrir ART þjónustu aðra en meðferð. Samþykkt.
1. Fjárhagsáætlun ársins 2009.
Í ljósi þess að fjárhagsáætlun Skólaskrifstofunnar fyrir árið 2009 var ekki samþykkt á aðalfundi skrifstofunnar í nóvember sl. og að miða þarf reksturinn við áætlun 2008 sem samin var síðla árs 2007, þá er fyrirséð að skólaskrifstofan þarf að forgangsraða verkefnum sínum upp á nýtt. Það sem af er yfirstandandi skólaári hafa biðlistar lengst verulega og voru 1. febrúar sl. 82% lengri en á sama tíma á síðasta skólaári, enda var verkefnum skólaskrifstofa fjölgað með gildistöku nýrra laga um grunn- og leikskóla síðastliðið sumar. Ekki hefur verið ráðið starfsfólk til að mæta auknum verkefnum.
Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands gerir sér grein fyrir erfiðu efnahagsumhverfi, en ítrekar mikilvægi þess að skerða ekki þjónustu við börn og ungmenni á þessum viðsjárverðu tímum, sbr. þingsályktun um aðgerðaráætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna samþykkt á Alþingi 13. júní 2007 og tilmæli menntamálaráðherra í kjölfar bankahrunsins.
Ef niðurskurðarkrafa fjárhagsnefndar frá aðalfundi í nóv. sl. stendur óbreytt við endurskoðun í lok 1. ársfjórðungs er ljóst að skólaskrifstofan mun ekki ná að sinna öllum þeim verkefnum sem henni hafa verið falin. Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands lítur það mjög alvarlegum augum ef skólaskrifstofunni er ekki gert kleift að sinna sínum lögboðnu verkefnum og skorar á fjárhagsnefnd að hafa það til hliðsjónar við endurskoðun fjárhagsáætlunar þessa árs.
Stjórnin felur framkvæmdastjóra að koma með tillögu um forgangsröðun verkefna fyrir næsta fund með hliðsjón af tillögu fjárhagsnefndar.
2. Endurmenntun fyrir starfsfólk grunn- og leikskóla 2009.
Á fundi með skólastjórnendum í grunnskólum 15. janúar sl. var ákveðið að halda ekki sumarnámskeið fyrir grunnskólakennara á vegum Skólaskrifstofu Suðurlands eins og verið hafa undanfarin ár. Ástæðan er minni eftirspurn eftir faggreinanámskeiðum, aukið aðhald og sparnaðarráðstafanir í grunnskólum. Ákveðið var að leggja megináherslu á ART verkefnið og fræðslu því tengdu, auk þróunarverkefna í lestri eins og verið hefur.
Í leikskólunum hefur verið unnin áætlun í samræmi við breyttar fjárhagsaðstæður og leitað leiða til að halda námskeið og fræðslufundi á sem ódýrastan og hagkvæmastan hátt og nýta þekkingu sem til staðar er á svæðinu.
3. Samningur um lengda viðveru fatlaðra grunnskólabarna 10-16 ára.
Kynntur samningur um lengda viðveru fatlaðra grunnskólabarna milli félagsmálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skv. samningnum skuldbindur ríkið sig til að greiða 50% heildarkostnaðar við lengda viðveru fatlaðra grunnskólabarna á aldrinum 10-16 ára. Samningurinn framlengdist um síðustu áramót til eins árs.
Einungis þrjú sveitarfélög á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands hafa nýtt sér þennan samning. Stjórnin bendir aðildarsveitarfélögum sem hugsanlega gætu átt rétt á greiðslu vegna þessa málaflokks að kynna sér samninginn hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
4. Tillaga að gjaldskrá fyrir ART þjónustu aðra en meðferð.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir ART þjónustu. Samþykkt.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið kl. 15:00.
Margeir Ingólfsson
Böðvar Bjarki Þorsteinsson
Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Kristín Hreinsdóttir
Til baka
