12.1.2009
111. stjórnarfundur

 

 

111. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

haldinn mánudaginn 12. janúar 2009 kl. 14:00 á Skólaskrifstofu Suðurlands, Austurvegi 56.

 

Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir varaformaður, Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.

Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum.  Formaður kynnti nýjan starfsmann Skólaskrifstofu Suðurlands, Snorra Rafn Sigmarsson sálfræðing sem hóf störf í byrjun ársins.  Snorri Rafn kemur í stað Arnars Sverrissonar sálfræðings sem lét af störfum í lok árs 2008.

 

1.       Fjárhagsáætlun ársins 2009.

          Fjárhagsáætlun sem samþykkt var á 109. stjórnarfundi Skólaskrifstofu Suðurlands 27. okt. 2008 hlaut ekki samþykki aðalfundar sbr. eftirfarandi bókun:

1.    Launaliðir verði óbreyttir frá áætlun 2008.

2.    Annar rekstrarkostnaður verði óbreyttur frá fyrra ári.

3.    Í ljósi mikillar óvissu í efnahagsmálum er lagt til að endurskoðun fjárhagsáætlunar fari fram eftir fyrsta ársfjórðung ársins 2009. Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands veiti stjórn Skólaskrifstofu og fjárhagsnefnd umboð til að afgreiða endurskoðaða fjárhagsáætlun.

Í samræmi við samþykkt aðalfundar verður fjárhagsáætlun endurskoðuð þegar uppgjör ársins 2008 liggur fyrir.

1.       ART verkefnið; endurskipulagning þjónustu.

Fjárveiting að upphæð 10 millj. kr. fékkst frá menntamálaráðuneytinu fyrir árið 2009.  Fjárhagsáætlun verkefnisins fyrir árið 2009 hljóðaði upp á 18 millj. kr.  Ljóst er að endurskipuleggja þarf þjónustu teymisins sem snýr að öðru en beinu meðferðarstarfi.   Kynnt drög að skilgreiningu á meðferðarstarfi sem og drög að gjaldskrá ART teymisins.  Framkvæmdastjóra falið að leggja tillögu að endanlegri gjaldskrá fyrir næsta stjórnarfund.

 

3.       Námskeið fyrir grunn- og leikskóla árið 2009.

          Fyrirhugað er að endurskipuleggja þjónustu Skólaskrifstofu Suðurlands varðandi endur- og símenntun fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla í ljósi efnahagsástandsins og dræmra mætinga síðustu ár.  Skólastjórar grunnskóla hafa verið boðaðir á fund nk. fimmtudag þar sem þessi mál verða rædd.  Endurskipulagningin mun verða gerð í samráði við skólastjórnendur leik- og grunnskóla.

 

4.       Leiðrétting á útsendri fundargerð 110. fundar stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands.

          Framkvæmdstjóra falið að senda út rétta fundargerð, en útsend fundargerð er ekki sú sem staðfest var og undirrituð á fundinum.


Fundargerð lesin upp og staðfest. 
Fundi slitið kl. 15:15.

Margeir
Ingólfsson
Þórunn Jóna Hauksdóttir
Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Kristín Hreinsdóttir




Til baka