Stærðfræðikeppni grunnskóla verður ekki haldin á þessu ári. Verkefnin í keppninni hafa verið samin af kennurum í Flensborgarskóla í Hafnarfirði, en vegna fjárskorts munu þeir ekki semja verkefni fyrir keppnina í ár. Sjá nánar á vef Flensborgarskóla: http://www.flensborg.is/ebs/stækepp1.htm.
Leitað var til fleiri aðila um samningu verkefna fyrir keppnina, en ekki hefur fundist aðili/aðilar sem treysta sér til að semja verkefni.
