Microsoft hefur sett á netið nýjan frían hugbúnað fyrir kennara. Hugbúnaðurinn gerir kennurum kleift að tengja allt að 25 nemendur í einu við PowerPoint kennsluefni með því að nota þráðlausar mýs. Ýmsir möguleikar eru í boði, s.s. fjölvalsspurningar, já/nei spurningar, teikningar og fleira. Hugbúnaðinn er hægt að sækja frítt á www.office.com. Sjá nánar á síðunni: http://www.microsoft.com/multipoint/mouse-mischief/en-us/default.aspx
