Fræðslufundir Skólaskrifstofu Suðurlands, vorönn 2012
Skráning á simenntun@skolasud.is eða í síma 480-8240.
Í skráningu þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang og netfang þátttakanda og nafn og greiðanda ef annar en þátttakandi. Athugið sérstaklega skráningafresti.
Allir fræðslufundirnir eru að Austurvegi 56 Selfossi, 3. hæð, nema annað sé tekið fram í lýsingu.
Hér má sækja yfirlitið í Word skjali: Fræðslufundir Skólaskrifstofu Vorönn 2012
|
Dagsetning |
Heiti erindis |
Fyrirlesari |
Skólastig |
|
Fimmtud. 12. jan. kl. 14.00-16.00 |
ADD og slök hlustun. Hvað er líkt með börnum með athyglisbrest og börnum með slaka heyrnræna úrvinnslu.
|
Alda S. Magnúsdóttir sálfræðingur og Hólmfríður Árnadóttir talmeinafræðingur. |
Leik- og grunnskóli Skráningu lýkur 9. Janúar. |
|
Þriðjud. 17. jan. Kl. 14.00-16.00
|
Endurtekinn hluti námskeiðs v. lesskimunarinnar Leið til læsis. Farið verður ítarlega í hagnýt atriði í sambandi við fyrirlagningu skimunar- og eftir-fylgniprófa, úrvinnslu þeirra og skráningu. Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim kennurum á svæðinu sem nú þegar hafa setið réttindanámskeið vegna prófanna og er það þeim að kostnaðarlausu. |
Helga Sigurmundsdóttir og Steinunn Torfadóttir.
|
Grunnskóli Námskeiðið er haldið í Vallaskóla, Selfossi. Skráningu lýkur 13. janúar. |
|
Fellur niður Fimmtud. 19. jan. kl. 14.00-16.00 |
Lestur á mótum skólastiga. Lestrarkennsla elstu barna leikskóla og yngstu barna í grunnskóla. |
Elinborg Sigurðardóttir kennsluráðgjafi Skólaskrifstofu. |
Leik- og grunnskóli Skráningu lýkur 16. janúar. |
|
Miðvikud. 25. jan. Kl. 14.00-16.00
|
Einkenni einhverfu og hvernig þau eru hamlandi fyrir barnið í skólanum, TEACCH kennsluaðferðin í leik- og grunnskólum, vinnukerfi og mat. |
Hrafnhildur Karlsdóttir leikskóla- og sérkennsluráðgjafi. |
Leik- og grunnskóli Skráningu lýkur 20. janúar. |
|
Fimmtud. 2. feb. kl. 14.00-16.00 |
“Held ég myndi ekki vilja vera stjórnandi sem er ekki í tengslum við starfið” Leikskólastjórar i dreifbýli og þættir í starfsumhverfi þeirra sem hafa áhrif á þá sem faglega leiðtoga. Kynning á niðurstöðum rannsóknar í meistaranámi H.Í. |
Sigríður Björk Gylfadóttir deildarstjóri í leikskólanum Leikholti, Skeiða- og Gnúpverjahreppi. |
Leikskóli
Skráningu lýkur 26. janúar. |
|
Fimmtud. 16. feb. kl. 14.00-16.00 |
Samráðsfundur sérkennslustjóra í leikskólum. |
Hrafnhildur Karlsdóttir leikskóla- og sérkennsluráðgjafi. |
Leikskóli Skráningu lýkur 13. febrúar. |
|
Mánud. 20. feb. kl. 14.00-16.00 |
Sterku hliðarnar. Að koma til móts við námsþarfir nemenda, m.a. með tölvutækni. Sagt frá þróunarverkefni í Laugalandsskóla. |
Ásta Kristjana Guðjónsdóttir sérkennari og Ragna Magnúsdóttir grunnskólakennari, Laugalandsskóla í Holtum. |
Grunnskóli Skráningu lýkur 13. febrúar. |
|
Miðvikud. 7. mars kl. 14.30-16.00 |
Kvíðaraskanir hjá börnum og unglingum. Fjallað um mismunandi birtingarmyndir í skóla og leiðir til að bregðast við. |
Snorri Rafn Sigmarsson sálfræðingur Skólaskrifstofu.
|
Grunnskóli Skráningu lýkur 2. mars. |
|
Fimmtud. 8. mars kl. 14.00-16.00 |
„Einu sinni voru tveir tómatar“. Um húmor leikskólabarna og um húmor í starfi með börnum. |
Hrafnhildur Karlsdóttir leikskólaráðgjafi Skólaskrifstofu. |
Leikskóli Skráningu lýkur 5. mars. |
|
Fimmtud. 15. mars Kl. 14.—16.00 |
Fræðslufundur um unglinga sem eru óöruggir með kynhneigð sína og jafnvel á leið út úr skápnum.
|
Sigríður Birna Valsdóttir Fræðslufulltrúi Samtakanna 78. |
Grunnskóli Skráningu lýkur 9. mars. |
|
Þriðjud. 20. mars kl. 14.00-16.00 |
Kennsla í getubreiðum hópum. Fjallað verður um leiðir til þess að efla samstarf umsjónarkennara og sérkennara, áhugasviðskannanir,undirbúning kennslu, skipulag hópastarfs og námsmat. |
Ásta Björk Björnsdóttir kennsluráðgjafi Skólasrifstofu.
|
Grunnskóli Skráningu lýkur 15. mars. |
|
Fimmtud. 22. mars kl. 14.00-16.00 |
Mikilvægi sjálfsstjórnar. Hver kannst ekki við fjörugu börnin, óþægu börnin, þrjósku börnin, börnin sem vilja ráða, börnin sem kennarar hafa áhyggjur af að ekki taki stýringu þrátt fyrir gott leikskólauppeldi? Við ætlum að ræða mikilvægi sjálfstjórnar barna. Sjálfstjórn er lærð og þjálfuð færni en ekki persónuleikaeinkenni. |
Alda Sigrún Magnúsdóttir sálfræðingur og Hólmfríður Árnadóttir talmeinafræðingur. |
Leik- og grunnskóli Skráningu lýkur 19. mars. |
|
Mánud. 26. mars kl. 14.00-16.00 |
Rafrænt mat. Kennsla í notkun á rafrænu mati fyrir leik- og grunnskólastjóra eða aðra sem annast mat í skólum. |
Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri Skólaskrifstofu. |
Leik- og grunnskóli Skráningu lýkur 22. mars. |
|
Miðvikud. 28. mars kl. 14.00-16.00 |
Kynungabók, jafnréttisfræðsla fyrir ungt fólk. Kynning á notkun bókarinnar. |
Jóna Pálsdóttir deildarstjóri upplýsinga- og þjónustusviðs Mennta- og menningar-málaráðuneytis. |
Elsta stig grunnskóla Skráningu lýkur 23. mars. |
|
Fimmtud. 29. mars Kl. 14.00-16.00 |
“Þjónusta iðjuþjálfa í leik- og grunnskólum”. Fræðsla um verksvið iðjuþjálfa og fjallað um ráðgjöf sem veitt er heimili og skólum og samvinnu þessara aðila. |
Guðrún Herborg Hergeirsdóttir og Ragnheiður Lúðvíksdóttir iðjuþjálfar á Skólaskrifstofu og HSU. |
Leik- og grunnskólar Skráningu lýkur 22. mars. |
|
Miðvikud. 11. apríl Kl. 13.30-16.00 |
TRAS Réttindanámskeið vegnaTRAS skráningarlista vegna málþroska ungra barna. |
Hólmfríður Árnadóttir talmeinafræðingur og Hrafnhildur Karlsdóttir Leikskólaráðgjafi. |
Leikskóli Skráningu lýkur 4. apríl. |
|
Miðvikud. 25. apríl kl. 14.00-16.00 |
OBS (Overgangen fra Barnehagen til skolen) OBS er framhald af TRAS skráningar-listanum. Kynning á OBS skráningarlista vegna málþroska 5 til 8 ára nemenda. |
Hólmfríður Árnadóttir talmeinafræðingur og Hrafnhildur Karlsdóttir leikskólaráðgjafi. |
Leik- og grunnskóli Skráningu lýkur 20. apríl. |
|
|
Fræðslufundir í |
vinnslu |
|
|
Dagur ekki ákveðinn |
Kynfræðsla í grunnskólum. |
|
Grunnskóli |
Athugið breyttar dagsetningar á fræðslufundayfirliti sem sent var út í september.
Athugið að þótt erindin séu miðuð að ákveðnu skólastigi, þá eru fræðslufundirnir öllum opnir. Kostnaði verður haldið í lágmarki, þátttökugjald á þau erindi sem sérfræðingar Skólaskrifstofu annast er kr. 2.000, en viðbúið er að erindi sérfræðinga utan Skólaskrifstofu verði kostnaðarsamari.
