136. fundur stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands

haldinn miðvikudaginn 11. janúar 2012 kl. 14:00 að Austurvegi 56, Selfossi.

Mætt: Ninna Sif Svavarsdóttir formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir, Þorsteinn M Kristinsson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð. 

Formaður setti fund og stjórnaði honum. 

1.     Staða skv. fjárhagsáætlun 2011.

Lögð fram staða skv. fjárhagsáætlun.  Reksturinn er samkvæmt áætlun.

2.     Tillaga frá Sveitarfélaginu Hornafirði um að skoða aðild sveitarfélagsins að Skólaskrifstofu Suðurlands.

Lagt var fram bréf frá sveitarfélaginu Hornafirði þar sem fram kemur bókun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá 174. fundi hennar þar sem bæjarstjórn felur skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að kanna kosti þess að Sveitarfélagið Hornafjörður gerist aðili að Skólaskrifstofu Suðurlands.  Í bréfinu eru bornar upp spurningar um starfsemi Skólaskrifstofu Suðurlands.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra og formanni að vinna málið áfram með Hornfirðingum leiti þeir eftir aðild, en upplýsingar um starfsemi skrifstofunnar hafa þegar verið veittar.

3.     Tilraunaverkefni Sambands ísl. sveitarfélaga og mennta- og menningarmálaráðuneytisins um ytra mat.

Lagt fram svar Guðjóns Bragasonar f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga við bréfi dags. 17. nóvember 2011.  Einnig lagt fram svar Bjarkar Ólafsdóttur við fyrirspurn Skólamálanefndar vegna sama máls og athugasemdir og svar framkvæmdastjóra Skólaskrifstofunnar við bréfi Bjarkar.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands lýsir yfir vonbrigðum sínum vegna vinnubragða verkefnisstjórnar um ytra mat. Ljóst má vera að faglegar forsendur fyrir vali á skólum/landssvæðum eru mjög veikar.  Skv. skólaskýrslu Sambands íslenskra sveitarfélaga (bls. 95) stendur til að svara ýmsum álitaefnum með þeim upplýsingum sem tilraunin gefur, en þar segir: “Einnig væri með tilraunaverkefninu hægt að svara á öruggari máta mörgum álitaefnum í tillögunum hvað varðar fyrirkomulag í kringum ytra matið.“  Mjög varasamt er að ætla að svara öðrum spurningum um framkvæmd en þeim sem lagt var upp með í upphafi, eftir að úrtakið hefur verið valið. 

Þá er það jafnframt mat stjórnarinnar að þar sem á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands hafi farið fram markviss undirbúningsvinna fyrir ytra mat, sem hófst áður en verkefnisstjórn um ytra mat á vegum sambandsins og menntamálaráðuneytisins var skipuð, sé það undarlegt að verkefnisstjórnin hafi ekki litið til þess í vali sínu á skólum.  Sú vinna hefði getað nýst í tilraunaverkefninu.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:30.

Ninna Sif Svavarsdóttir
Þórunn Jóna Hauksdóttir
Þorsteinn M Kristinsson
Kristín Hreinsdóttir