6. aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

6. aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands var haldinn í Vík 28. og 29. október 2011.

Aðalfundarstörf

1. Setning

Þorsteinn M Kristinsson varaformaður setti fundinn í fjarveru Ninnu Sifjar Svavarsdóttur formanns.  Þorsteinn fjallaði um mikilvægi skólastarfs, þann niðurskurð sem komið hefur til í menntamálum sem valdið hefur auknu álagi á starfsfólk menntastofnana.  Einnig minntist Þorsteinn á ART verkefnið og ályktun starfshóps um sameiginlegt heildarmat sem kynnt verður seinna á fundinum.   Að lokum sagði hann að rekstur  Skólaskrifstofunnar hafi gengið vel og tekið mið af þröngri stöðu sveitarfélaganna.  Einnig hvatti hann til þess að sveitarstjórnarmenn stæðu vörð um skólaskrifstofuna og hennar mikilvægu verkefni.

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

Varaformaður tilnefndi Ásgeir Magnússon og Elínu Einarsdóttur sem fundarstjóra og Ásthildi Lárusdóttur og Kolbrúnu Möggu Matthíasdóttur sem fundarritara. Tillagan var samþykkt samhljóða.

Í lok máls síns fól varaformaður fundarstjórum stjórn fundarins.

3. Kosning í kjörbréfa og kjörnefnd og fjárhagsnefnd

Lögð var fram svohljóðandi tillaga stjórnar SASS að kjörbréfa- og kjörnefnd og fjárhagsnefnd:

Kjörbréfa- og kjörnefnd                                                   

Aðalmenn                                                                              

Jóna Sigurbjartsdóttir formaður

Skaftárhreppi

Gunnar Þorgeirson

Grímsnes- og Grafningshreppi

Aldís Hafsteinsdóttir

Hveragerðisbæ

Gunnlaugur Grettisson

Vestmannaeyjabæ

Ísólfur Gylfi  Pálmason

Rangárþingi- Eystra

Ari Björn Thorarensen

Sveitarfélaginu Árborg

Ásgrímur Ingólfsson

Sveitarfélaginu Hornafirði

Fjárhagsnefnd

Aðalmenn

Gunnsteinn R Ómarsson, formaður

Rangárþingi ytra

Ásta Stefánsdóttir, varaformaður

Sveitarfélaginu Árborg

Kristín Magnúsdóttir

Sveitarfélaginu Ölfus

Ingibjörg Harðardóttir

Grímsnes og Grafningshreppi

Margrét Sigurðardóttir

Flóahreppi

 Var tillagan samþykkt samhljóða og tók kjörbréfa- og kjörnefnd þegar til starfa.

4. Skýrsla framkvæmdastjóra/ársskýrsla

Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri fór yfir starfsemi skólaskrifstofunnar, kynnti starfsstöðvar hennar og útibú og helstu verkefni.  Töluverð fjölgun mála hefur orðið í grunn- og leikskólum og kynnti hún ástæður þess.  Fjölgun er í tilvísunum til kennsluráðgjafa, sálfræðinga og leikskólaráðgjafa, en nokkur fækkun tilvísana til talmeinafræðings.  Kristín minntist á lagabreytingar sem urðu árið 2008, fór yfir hlutverk ráðgjafa skólaskrifstofunnar og vakti athygli á brýnni þörf á að fá talmeinafræðinga til þjálfunar á Suðurlandi.  Kristín fór yfir endurmenntun og fræðslu sem Skólaskrifstofu Suðurlands stóð fyrir á skólaárinu 2010 – 2011. Einnig fór hún yfir önnur verkefni sem á árinu, m.a.  skipulag í kringum danskan farkennara sem starfaði úti í skólum á Suðurlandi , Stóru upplestrarkeppnina, Stærðfræðikeppnina og ART verkefnið, sem hún hvatti sérstaklega til að væri innleitt í þá skóla sem ekki hafa það nú þegar.  Þá hvatti Kristín til þess að ART þjálfunar yrði getið í skólastefnum sveitarfélaganna.

5. Niðurstöður kjörbréfa- og kjörnefndar um lögmæti fundarins

Jóna Sigurbjartsdóttir, formaður kjörbréfa- og kjörnefndar kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir kjörbréfum.  Alls voru 42 kjörnir fulltrúar. Gild kjörbréf eru 39, en alls voru 35 aðalfulltrúar og 4 varamenn mættir.  Fundurinn úrskurðast því lögmætur.

6. Afgreiðslumál

i) Endurskoðaðir reikningar

Framkvæmdastjóri, kynnti ársreikning fyrir árið 2010.  Rekstrartekjur voru 83,8 rekstrargjöld 85,1 og tap af rekstri Skólaskrifstofunnar 350 þúsund að teknu tilliti til fjármagnsliða.  Tillagan var samþykkt.

ii)Tillaga að fjárhagsáætlun

Framkvæmdastjóri kynnti fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir árið 2012.  Áætlunin gerir ráð fyrir rekstarartekjum upp á 106,3 millj. kr. og rekstrargjöldum sömu upphæð eða 106,3 millj. kr.  Tillagan var samþykkt.

 iii) Tillaga að breytingum á samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands

Varaformaður lagði fram tillögu fyrir hönd stjórnar um að liður 4.4 í samþykktum Skólaskrifstofunnar verði felldur út og að lið 5.6 verði breytt til samræmis við breytingar á samþykktum annarra byggðarsamlaga sunnlenskra sveitarfélaga á Austurvegi 56.

Fundarstjóri gaf orðið laust um tillöguna.

Til máls tóku Þórunn Jóna Hauksdóttir, Aldís Hafsteinsdóttir og Kristín Hreinsdóttir.

Fundarstjóri lagði til að tillögunni yrði vísað til allsherjarnefndar og var það samþykkt.

IV) Niðurstaða starfshóps um Heildarmat á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands.

Tillögunum var vísað til menntamálanefndar.

7. Kosningar

Jóna Sigurbjartsdóttir formaður lagði fram eftirfarandi tillögu kjörnefndar:

i) Kosning 3 fulltrúa í stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands og 3 varamanna

Aðalmenn

Ninna Sif Svavarsdóttir formaður,

Hveragerðisbæ

Þorsteinn M Kristinsson varaformaður,

Skaftárhreppi

Þórunn Jóna Hauksdóttir

Sveitarfélaginu Árborg

Varamenn:

Arna Ír Gunnarsdóttir

Árborg

Margrét Sigurðardóttir

Flóahreppi

Magnús H Jóhannsson

Rangárþing ytra

ii) 2 skoðunarmenn ársreikninga og 2 varamenn

Skoðunarmenn

Aðalmenn

Guðmundur Þór Guðjónsson

Hveragerði

Drífa Kristjánsdóttir

Bláskógabyggð

 Varamenn

Egill Sigurðarson

Ásahreppi

Sandra Dís Hafþórsdóttir

Sveitarfélaginu Árborg

Fundarstjóri gaf orðið laust en enginn kvaddi sér hljóðs.

Tillögur kjörnefndar bornar undir atkvæði og samþykktar samhljóða.

8. Almennar umræður

Fundarstjóri gaf orðið laust.

Engin kvaddi sér hljóðs.

Fundarstjóri gaf varaformanni orðið.

Þorsteinn M. Kristinsson þakkaði fyrir góðar umræður á fundinum.

Fundi frestað til morguns.

Í lok ársfundar SASS, 29. október kl. 14:30 var framhaldið fundi SKS og fjallað um tillögu að lagabreytingum sem vísað var til allsherjarnefndar.  Tillaga allsherjarnefndar er eftirfarandi:

Tillaga um breytingar á samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands.

Eftirfarandi tillaga á breytingum á samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands var samþykkt á 134. fundi stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands 6. október 2011:

 Lagt er til að liður 4.4 um kosningu í starfsnefndir verði felldur út:

Gr. 4.4

Á aðalfundi skulu kosnar starfsnefndir fundarins; kjörbréfa- og kjörnefnd sem fer yfir kjörbréf fulltrúa og gerir tillögur um kjör í stjórn og nefndir samkvæmt þessari grein, fjárhagsnefnd, sem fjallar um fjárhagsáætlun og önnur fjármál skrifstofunnar, allsherjarnefnd, og auk þess málefnanefndir sem fjalla um einstök mál sem eru til umræðu.

Lagt er til að lið 5.6 um sameiginlega starfsmanna- og launastefnu verði breytt til samræmis við breytingar á samþykktum annarra byggðasamlaga sunnlenskra sveitarfélaga á Austurvegi 56:

Gr. 5.6

Starfsmannastefna skal unnin og staðfest af stjórn. Framkvæmdastjóri Skólaskrifstofu Suðurlands ber ábyrgð á að starfsmanna- og launastefnu verði fylgt.

Starfsmanna- og launastefna er sameiginleg með Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Skólaskrifstofu Suðurlands.  Umsjón  launa- og starfsmannastefnunnar er í höndum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Allsherjarnefnd hefur fjallað um tillöguna og leggur til að hún verði samþykkt en beinir því til stjórnar SASS að unnin verði sameiginleg launa- og starfsmannastefna fyrir byggðarsamlögin að Austurvegi 56.  Tillagan var samþykkt samhljóða.

Fundi slitið.