135. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

haldinn fimmtudaginn 17. nóvember 2011, kl. 11:00 að Austurvegi 56, Selfossi.

Mætt: Ninna Sif Svavarsdóttir formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir, Þorsteinn M Kristinsson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð. 

Formaður setti fund og stjórnaði honum. 

1.              Staða skv. fjárhagsáætlun 2011.

                  Lögð fram staða skv. fjárhagsáætlun.  Reksturinn er samkvæmt áætlun.

2.              6. aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands í Vík 28.-29. október 2011.                   

Farið var yfir fundargerð og ályktanir sem gerðar voru á 6. aðalfundi   Skólakrifstofu Suðurlands sem haldinn var í Vík í Mýrdal 28. og 29. október 2011.

3.          Tilraunaverkefni Sambands ísl. sveitarfélaga og mennta- og                                                                             menningarmálaráðuneytisins  um ytra mat.

             Á síðasta fundi skólamálanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga var lögð fram tillaga um sex skóla sem taka eiga þátt í tilraunaverkefni um ytra mat sem gert verður í samstarfi mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga á árinu 2012.  Þrátt fyrir að hugmyndin að útfærslu verkefnisins sé m.a. tilkomin á Suðurlandi og þar hafi farið fram töluverður undirbúningur fyrir verkefnið með samráði við skólasamfélagið í heild sinni, þ.e. skólastjórnendur, kennara, foreldra og sveitarstjórnarmenn, varð enginn skóli á Suðurlandi fyrir valinu.

              Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands lýsir undrun sinni á valinu og óskar eftir skýringum á því hvernig                     og  hverjir stóðu að valinu og hvaða faglegu forsendur lágu að baki.

 Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:40.