134. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

 

haldinn fimmtudaginn 6. október 2011 kl. 11:00 að Austurvegi 56, Selfossi.

 

Mætt: Ninna Sif Svavarsdóttir formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð. 

Formaður setti fund og stjórnaði honum. 

1.             Drög að fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir árið 2012.

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2012 fyrir Skólaskrifstofu Suðurlands.

Almennt er 5% hækkun reiknuð á rekstrarliði, nema þar sem rauntölur m.v. stöðu rekstrarreiknings 3.10.2011 gefa tilefni til annars. Hækkun launa er samkvæmt kjarasamningum. Reiknað er með aukningu stöðugildis talmeinafræðings úr 50% í 100% frá ársbyrjun 2012 vegna mikilla og viðvarandi biðlista eftir greiningum og ráðgjöf talmeinafræðings í leik- og grunnskólum. Reiknað er með fjölgun stöðugilda sérkennsluráðgjafa úr 2,5 í 3 frá ágústbyrjun 2012.  Þá er gert ráð fyrir aukningu í liðnum Aðkeypt sálfræðiráðgjöf til að unnt sé að ráða sálfræðing í verktöku á álagstímum. Langir biðlistar eru eftir þjónustu sérfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands og hefur orðið töluverð fjölgun mála á milli ára, auk þess sem þyngri og langvarandi málum hefur fjölgað.

Nú hafa náðst samningar um auknar tekjur frá ríki til sveitarfélaganna í tengslum við samning um framhaldsnám í tónlist, sem greiddar verða sveitarfélögunum í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og því ráðrúm til að bæta úr brýnni þörf fyrir fjölgun stöðugilda á Skólaskrifstofu Suðurlands. Vísað er til niður starfshóps  menntamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kostnaðaráhrif nýrra laga um leik- og grunnskóla, en starfshópurinn komst að þeirri niðurstöðu þegar metin var reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga vegna leik- og grunnskóla og nemendaverndarráða í grunnskólum, að áætlaður kostnaðarauki sveitarfélaga vegna aukinnar eftirfylgdar og mats nemi um 200 millj. kr. á ári á landsvísu.  Sé upphæðinni deilt á fjölda leik- og grunnskólabarna á landinu nemur kostnaðaraukinn tæpum 12 millj. kr. á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands. 

Reiknað er með að þjónustugjöld sveitarfélaga verði 104,5 millj. kr. og rekstrartekjur 106,5 millj. kr.  Rekstrargjöld samtals verði tæpar 106,5 millj. kr.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands samþykkir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir árið 2012.  Áætlunin verður lögð fyrir aðalfund Skólaskrifstofu Suðurlands 28. október nk. til staðfestingar.

2.             Fjárhagsáætlun ART verkefnisins á Suðurlandi 2012

Rekstrargjöld ART verkefnisins eru áætluð 28,4 millj. kr.  Óvissa er um framlag ríkisins til verkefnisins.  Samningur við barnaverndarnefndir á Suðurlandi gildir út árið 2014 og tryggir verkefninu 11 millj. kr. á ári frá Barnaverndarstofu.  Gert er ráð fyrir 7 millj. kr. framlagi frá ríki, 1,4 millj. kr. tekjum vegna námskeiða og 9 millj. kr. framlagi frá sveitarfélögum (sbr. drög að tillögu stjórnar SASS um rekstrarfyrirkomulag ART verkefnis sem samþykkt var á ársþing SASS árið 2010).

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands samþykkir fjárhagsáætlun ART verkefnisins fyrir árið 2012 fyrir sitt leyti og vísar henni til stjórnar SASS til samþykktar. Áætlunin verður lögð fyrir aðalfund SASS 28. okt. nk. til staðfestingar. 

3.       Dagskrá aðalfundar Skólaskrifstofu Suðurlands 2011.

             Dagskráin lögð fram og samþykkt.

 

4.       Tillaga að breytingu á samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands.

             Farið yfir samþykktir Skólaskrifstofu Suðurlands.  Lagt er til að liður 4.4 um kosningu í starfsnefndir verði felldur út og lið 5.6 um sameiginlega starfsmanna- og launastefnu verði breytt til samræmis við breytingar á samþykktum annarra byggðasamlaga sunnlenskra sveitarfélaga á Austurvegi 56.

 

             Fundargerð lesin upp og samþykkt.

             Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:30.

 

Ninna Sif Svavarsdóttir

Þórunn Jóna Hauksdóttir

Kristín Hreinsdóttir