“Framtíðin er ekki sú sem hún var” (fyrirlestur Sir John Jones á Scottish Learning Festival 2011)

Hvernig getum við brotið upp hringrás vöntunar/skorts og gefið öllum börnum og ungmennum tækifæri að ná árangri í síbreytilegum heimi?

Fyrirlesturinn fjallar m.a. um inntak kennarastarfsins og hvernig við þurfum að nálgast það verkefni að kenna þjóðfélagsþegnum framtíðarinnar.

Sir John Jones var aðlaður fyrir framlag sitt til menntunar árið 2003.  Hann var skólastjóri í skólum sem Bretar kalla “challenging schools” (erfiðir skólar) og tókst vel upp við að breyta árangri skólanna til hins betra.

Hægt er að horfa á fyrirlesturinn á meðfylgjandi slóð: http://www.ltscotland.org.uk/mp4/slf/SLF11SirJohnJones.mp4

Meira um fyrirlesturinn:

Lengd

1 klst.

Lýsing

Heimurinn er að breytast og sú breyting er óumflýjanleg og óhjákvæmileg. Fyrir mörg börn jafngildir bakgrunnur þeirra þó örlögum þeirra.  Það, hvar þau fæðast, ákvarðar enn hversu vel þeim mun vegna.  Hvernig getum við brotið upp þessa hringrás vöntunar/skorts og gefið sérhverju barni og ungmenni tækifæri til að ná árangri í okkar síbreytilega heimi?  Rannsóknir gefa til kynna að nám geti brotið upp þessa hringrás.  Nelson Mandela sagði að aðeins með menntun geti sonur námuverkamanns orðið stjórnandi námunnar: að dóttir þjónustufólks geti orðið læknir; að barn landbúnaðarverkamanns geti orðið forseti stoltrar þjóðar.  Góðu fréttirnar eru því þær að skólar skipta máli en slæmu fréttirnar eru einnig þær að skólar skipta máli.  Ef við erum ekki tilbúin til að umfaðma breytingar og gera frumkvæði og sköpun að keppikefli gætum við misst af stórkostlegu tækifæri til að taka þátt í að skapa veröld þar sem hvert einasta barn skiptir máli og enginn er undanskilinn.

Fyrirlesari

Sir John Jones

Um fyrirlesarann

Sir John Jones var aðlaður árið 2003 fyrir framlag sitt til menntunar.  Hann vann lengst af starfsferli sínum í „erfiðum“ skólum í norðvestur hluta Englands og var síðast skólastjóri í stórum unglingaskóla í Merseyside.  Afrek hans og orðspor fyrir hreinskiptin samskipti, leiðtogahæfni og sköpun urðu til þess að honum hefur verið boðið að halda fyrirlestra fyrir margvíslegar stofnanir, umræðuhópa og hugarflugsfundi („think tanks“).

Skólar eru að búa börn undir heim sem enn er ekki til.  Hefðbundin skólun verður að gefa ráðrúm fyrir þá hæfni sem börn munu þurfa að hafa til að bera til að ná árangri í nýjum heimi.  Breyting er óhjákvæmileg en vöxtur er valkvæður og „vatnshugsun“ (water thinking) verður að koma í stað „klettahugsunar“ (rock thinking).

Sem hluta af fyrirlestrinum ræðir Sir John um þörfina fyrir breytingar, hvernig breytingarnar gætu litið út og hvers vegna breytingar eru alltaf erfiðar, þótt þær séu nauðsynlegar.