131. fundur stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands

haldinn fimmtudaginn 18. ágúst 2011, kl. 14:30 að Austurvegi 56, Selfossi.

Mætt: Ninna Sif Svavarsdóttir formaður stjórnar, Þórunn Jóna Hauksdóttir og Þorsteinn M Kristinsson. Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri ritaði fundargerð. 

Formaður setti fund og stjórnaði honum. 

1.      Fjárhagsstaða.

Farið var yfir stöðu á rekstrarreikningi skv. fjárhagsáætlun ársins 2011 fyrir Skólaskrifstofu Suðurlands og ART verkefnið í Suðurlandi.  Reikna má með að launaliðurinn fari eitthvað fram úr áætlun vegna nýrra kjarasamninga, en ekki var gert ráð fyrir neinum launahækkunum í fjárhagsáætlun.  Að öðru leyti er rekstur samkvæmt áætlun.

2.     Erindi frá Héraðsnefnd Rangæinga.

Farið yfir erindi frá nefndinni dags. 26. júní 2011 varðandi húsnæðismál stofnana á Austurvegi 56, Selfossi.  Héraðsnefnd óskar eftir fundi með stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands vegna málsins.  Framkvæmdastjóra og formanni falið að finna fundartíma sem hentar báðum aðilum.

3.     Starfsmannamál.

Farið var yfir stöðu talmeinamála.  Sonja Magnúsdóttir talmeinafræðingur er að ljúka skýrslugerð vegna þeirra mála sem hún sinnti í fjarveru Hólmfríðar Árnadóttur talmeinafræðings.  Talsverð miðaði í að ná niður löngum biðlista, en þó eru enn u.þ.b. 20-30 mál á bið.

 Anný Ingimarsdóttir hefur verið ráðin hjá ART teyminu í 80% starf tímabundið og hefur störf 1. september nk.

 4.      Endurmenntun á haustönn.

Framkvæmdastjóri fór yfir skráningar og mætingu á námskeiðum haustsins og styrki sem fengust til þeirra verkefna frá Endurmenntunarsjóði grunnskóla.

Styrkir fengust vegna 6 námskeiða úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla, alls 1 millj. kr. Nægjanleg þátttaka náðist í 5 námskeiðum: Tveimur ART námskeiðum, því seinna lýkur í dag. Stafrænni myndbandagerð og Lestrarkennslu á mörkum skólastiga: Læs í vor lauk í yfirstandandi viku og námskeiðið Fjölbreytni lífvera verður haldið í september og október.

 5.     Nýir skólastjórar á Suðurlandi.

Í Víkurskóla hefur verið ráðin Anna Björnsdóttir, en hún hefur verið starfandi skólastjóri þar síðan í nóvember 2010.  Hún tók við af Magnúsi Sæmundssyni.

Í Grunnskóla Bláskógabyggðar er nýr skólastjóri Hrund Harðardóttir.  Hún tók við af Arndísi Jónsdóttur.

Í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri er nýr skólastjóri Magnús J Magnússon.  Hann tók við af Arndísi Hörpu Einarsdóttur.

Í Þjórsárskóla er nýr skólastjóri í afleysingu Bolette Höeg Koch. Hún leysir Ingibjörgu Maríu Guðmundsdóttur af, en Ingibjörg María er í ársleyfi.

Leikskólarnir á Stokkseyri og Eyrarbakka, Æskukot og Brimver, hafa verið sameinaðir undir einn skólastjóra.  Leikskólastjóri en M Sigríður Jakobsdóttir, en hún var áður leikskólastjóri á Brimveri.  Á Æskukoti tekur hún við af Ísrúnu Albertsdóttur.

6.      Undirbúningur fjárhagsáætlunar ársins 2012.

Farið yfir helstu forsendur og áherslur næsta fjárhagsárs.

 

Næsti fundur ákveðinn fimmtudaginn 1. september kl. 11:00.

Fundargerð lesin upp og staðfest.

Fundi slitið kl. 16:00.

 

 Ninna Sif Svavarsdóttir
Þorsteinn M Kristinsson
Þórunn Jóna Hauksdóttir
Kristín Hreinsdóttir