130. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

130. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

haldinn miðvikudaginn 8. júní 2011, kl. 8:00 að Austurvegi 56, Selfossi.

Mætt: Ninna Sif Svavarsdóttir formaður stjórnar og Þórunn Jóna Hauksdóttir. Þorsteinn M Kristinsson boðaði forföll og ekki náðist í varamann. Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri ritaði fundargerð. 

Formaður setti fund og stjórnaði honum. 

Samþykkt var að bæta við lið 5 á dagskrá, um samkomulag um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms.

1.        Fjárhagsstaða.

 Farið var yfir stöðu á rekstrarreikningi skv. fjárhagsáætlun ársins 2011 fyrir Skólaskrifstofu Suðurlands og ART verkefnið í Suðurlandi.  Rekstur er samkvæmt áætlun.

2.      Starfsmannamál.

Farið var yfir stöðu talmeinamála.  Sonja Magnúsdóttir talmeinafræðingur hefur starfað í verktöku fyrir skrifstofuna í veikindaleyfi Hólmfríðar Árnadóttur.  Hún mun starfa út mánuðinn, en henni hefur gengið greiðlega að stytta biðlistann sem var orðinn langur og mörg mál búin að bíða lengi eftir aðkomu talmeinafræðings. 

3.      Ytra mat í samvinnu ríkis og sveitarfélaga.

Kennsluráðgjafar skrifstofunnar hafa verið í kynningu og þjálfun hjá Birnu Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra Heildarmats á skólastarfi hjá Reykjavíkurborg undanfarnar vikur og hafa fengið góða kynningu á heildarmatinu.

Á vorþingi Grunns, félags stjórnenda á skólaskrifstofum, var kosið um þrjár leiðir til að framkvæma ytra mat í grunnskólum.  Meirihluti stjórnenda á skólaskrifstofum vildi að farin yrði sú leið að stofnuð yrðu landshlutateymi, 4-6 talsins, sem sæju um mat hvert í sínum landshluta.  Verkefnisstjóri yrði ráðinn af menntamálaráðuneytinu sem væri ábyrgur fyrir samræmingu og innleiðingu vinnulags og vinnubragða við matið. Verkefnisstjórinn ásamt verkefnisstjórum landshlutateymanna myndi stýrihóp sem fara reglulega yfir árangur og áherslur í ytra matinu.

 Á fundi skólamálanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga þriðjudaginn 7. júní sl. komu fulltrúar menntamálaráðuneytis á fundinn, ásamt Karli Björnssyni framkvæmdastjóra Sambandsins, Björku Ólafsdóttur verkefnisstjóra og Valgerði Freyju Ágústsdóttur sérfræðingi hjá Sambandinu.  Rætt var um tilraunaverkefni sem Sambandið og Mennta- og menningarmálaráðuneytið hyggjast standa að sameiginlega um ytra mat á skólastarfi í grunnskólum.  Reiknað er með að teknir verði út 6 skólar í tilraunaverkefninu sem fram fer á næsta skólaári.  Áætlað er að á haustönninni verði gengið frá viðmiðum sem lögð verða til grundvallar í matinu og á vorönn fari matið fram.  Niðurstöður tilrauna­verkefnisins verða síðan notaðar þegar framtíðarskipulag verður ákveðið.  Ekki er gert ráð fyrir verulegum kostnaði fyrir sveitarfélögin sem taka þátt í tilraunaverkefninu.

4.      Húsnæðismál.

Lagt var fyrir bréf frá sveitarfélaginu Árborg þar sem boðað var til fundar 1. júní 2011 vegna hugsanlegs þekkingarseturs í Sandvíkurskóla á Selfossi, en grunnskólastarfi í húsinu hefur nú verið hætt.  Í bréfinu var óskað eftir frekari viðræðum við stjórn og stjórnendur Skólaskrifstofu Suðurlands um að taka á leigu hluta húsnæðis Sandvíkurskóla og flytja starfsemi sína þangað. 

Framkvæmdastjóri og tveir stjórnarmenn, þær Ninna Sif Svavarsdóttir formaður og Þórunn Jóna Hauksdóttir sátu fundinn og skoðuðu húsnæðið.  Stjórn skólaskrifstofunnar þakkar fyrir kynninguna.

 5.    Samkomulag um eflingu tónlistarnáms og framlög vegna aukins hlutverks sérfræðiþjónustu  sveitarfélaga.

Fjallað var um samkomulag um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, en þar segir í 2. gr.: „Ríkissjóður veitir árlega framlag alls 480 m.kr. vegna kennslukostnaðar í tónlistarskólum …  Á móti skuldbinda sveitarfélög sig til að taka yfir ný verkefni frá ríki sem nemur 230 m.kr.“  Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands vekur athygli á að samstarfsnefnd Sambands ísl. sveitarfélaga og menntamálaráðuneytis kostnaðarmat breytingar á grunnskólalögum nr. 91/2008, kaflanum um aukin verkefni sérfræðiþjónustu og sérkennslu, á 230 m.kr.

          Fundargerð lesin upp og staðfest.

          Fundi slitið kl. 9:30.

Ninna Sif Svavarsdóttir

Þórunn Jóna Hauksdóttir

Kristín Hreinsdóttir