129. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn mánudaginn 2. maí 2011, kl. 9:00 að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt: Ninna Sif Svavarsdóttir formaður stjórnar, Þorsteinn M Kristinsson varaformaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir, og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og stjórnaði honum.
- Fundur með starfsmönnum Skólaskrifstofu Suðurlands.
Eftirtaldir sérfræðingar Skólaskrifstofu Suðurlands mættu til fundar kl. 9:00: Sálfræðingarnir Snorri Rafn Sigmarsson, Ragnar S Ragnarsson og Alda Sigrún Magnúsdóttir; kennslu- og sérkennsluráðgjafarnir Edda G Antonsdóttir, Elinborg Sigurðardóttir og Ásta Björk Björnsdóttir; Hrafnhildur Karlsdóttir leikskóla- og sérkennsluráðgjafi; og starfsfólk ART-teymisins Bjarni Bjarnason verkefnisstjóri ART á Suðurlandi og Sigríður Þorsteinsdóttir ART þjálfari. Hólmfríður Árnadóttir talmeinafræðingur er fjarverandi vegna veikinda.
Farið var yfir verkefni og verkefnastöðu sérfræðinga. Ljóst er að samdráttur í heilbrigðis- og félagsþjónustu hefur haft veruleg áhrif á starfsemi Skólaskrifstofu. Starfsfólk hefur miklar áhyggjur af löngum biðlistum og miklu álagi. Starfsfólkið fór af fundi kl. 10:30.
2. Staða samkvæmt fjárhagsáætlun 2011.
Farið var yfir rekstrarreikninga ársins 2011. Rekstur er samkvæmt áætlun.
3. Starfsmannamál.
Vegna veikinda talmeinafræðings og mikils biðlista eftir greiningum og ráðgjöf talmeinafræðings á Skólaskrifstofu Suðurlands hefur verið ráðinn talmeinafræðingur í verktöku í apríl og maí. Hún heitir Sonja Magnúsdóttir og kemur frá Akureyri. Hún hefur þegar hafið störf. Miðað verður við að halda kostnaði við talmeinamálin innan fjárhagsáætlunar.
4. Biðlistar vegna sérfræðimála.
Talsverðir biðlistar hafa safnast upp hjá sérfræðingum Skólaskrifstofu Suðurlands. Samkvæmt yfirliti frá 10. apríl sl. eru alls 142 tilvísunarmál sem bíða aðkomu sérfræðinga, en þau skiptast eftirfarandi:
- sálfræðiráðgjöf og greiningar: 47 mál.
- kennsluráðgjöf og greiningar: 44 mál.
- talmeinaráðgjöf og greiningar: 50 mál.
- leikskólaráðgjöf: 1 mál.
Í vinnslu sérfræðinga þann 10. apríl sl. voru 165 mál, í eftirfylgd 265 mál og mál sem lokað hefur verið frá 1. júlí eru 240. Alls hafði því verið vísað til sérfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands þann 10. apríl sl. 812 málum á yfirstandandi skólaári, en tilvísunarmál allt skólaárið 2009-2010 voru 828.
Fram kom í máli starfsfólks að hluti þeirra mála sem vísað er til Skólaskrifstofu ætti frekar heima hjá öðrum sérfræðiþjónustum, s.s. heilsugæslu og félagsþjónustu. Stjórnin lýsir áhyggjum sínum yfir löngum biðlistum sem myndast hafa vegna aukinna lögbundinna verkefna sérfræðinga Skólaskrifstofunnar og telur jafnfram brýnt að tryggja viðunandi þjónustu ofangreindra aðila.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið kl. 11:40.
Ninna Sif Svavarsdóttir
Þorsteinn M Kristinsson
Þórunn Jóna Hauksdóttir
Kristín Hreinsdóttir
