Miðvikudaginn 30. mars var haldið metnaðarfullt skólaþing í Bláskógabyggð. Fengið var liðsinni Capacent til að setja upp og skipuleggja þingið með heimamönnum.
Tilgangur þingsins var að:
- Fá íbúa og nemendur til að ræða málefni skólans eins opið og hægt er.
- Vinna svo skólastefnu og framtíðarsýn fyrir skóla sveitarfélagsins út frá niðurstöðum skólaþingsins.
Allir aldurshópar fengu tækifæri til að taka þátt. Leikskólabörnin fengu spurningar til að svara um skólann sinn og hvernig hann ætti helst og best að vera, yngri börnin á grunnskólanum tóku þátt í þinginu frá kl. 13-14, eldri börnin frá 14-15 og svo kom fullorðna fólkið frá 15:30-18:00. Alls tóku u.þ.b. 140 grunnskólanemendur þátt og ríflega 90 fullorðnir, auk barnanna í leikskólanum.
Meginspurningin sem fullorðna fólkið tókst á við var:
- Hvað má betur fara í skólastarfinu?
Nemendur fengust við spurningarnar:
- Hvernig viltu hafa skólann? Nánari upplýsingar um þingið og efni þess má finna á slóðinni: http://blaskogabyggd.is/Fraedslumal/skolathing/
