128. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn mánudaginn 7. mars 2011, kl. 9:00 að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt: Ninna Sif Svavarsdóttir formaður stjórnar, Þorsteinn M Kristinsson varaformaður, Arna Ír Gunnarsdóttir (sem varamaður fyrir Þórunni Jónu Hauksdóttur), og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og stjórnaði honum.
1. Staða skv. fjárhagsáætlun 2011.
Lagt fram yfirlit yfir fjárhagsstöðu Skólaskrifstofu Suðurlands miðað við fjárhagsáætlun ársins 2011.
Staðan er samkvæmt áætlun.
2. Niðurstaða vinnuhóps um Heildarmat á skólastarfi.
2. fundur vinnuhóps um kosti og galla Heildarmats á skólastarfi í á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands var haldinn 2. mars 2011. Hópinn skipuðu tveir fulltrúar skólastjóra, þau Guðbjartur Ólason skólastjóri Vallaskóla og Kolbrún Sigþórsdóttir aðstoðarskólastjóri Laugalandsskóla, Jórunn H Jónsdóttir kennari í Hvolsskóla og Guðbjörg Halldórsdóttir kennari í Sunnulækjarskóla sem fulltrúar kennara og Dorothee Lubecki fulltrúi foreldra, ásamt Þórunni Jónu Hauksdóttur og Ninnu Sif Svavarsdóttur úr stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands. Þá starfaði framkvæmdastjóri Skólaskrifstofu Suðurlands með hópnum.
Starfshópurinn leggur til að tekið verði upp Heildarmat á skólastarfi á svæðinu. Það var mat hópsins að Heildarmatið fæli í sér tækifæri til að auka gæði og árangur í skólastarfi enda er það reynsla þeirra skóla sem þegar hafa tekið upp Heildarmat.
Fræðslustjórinn í Reykjavík hefur boðið Skólaskrifstofu að senda tvo starfsmenn í þjálfun í aðferðum Heildarmats skrifstofunni að kostnaðarlausu. Þá hefur menntamálaráðherra lýst yfir áhuga á þátttöku ráðuneytisins í verkefninu. Stjórnin mælir eindregið með því að haldið verði áfram vinnu við undirbúning Heildarmats á starfssvæði Skólaskrifstofunnar. Lögð verður fram tillaga á aðalfundi um að taka upp Heildarmat á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands.
3. Fyrirspurnir um námsráðgjöf.
Nokkrar fyrirspurnir hafa borist framkvæmdastjóra Skólaskrifstofu Suðurlands um námsráðgjöf í framhaldi af því að menntamálaráðuneytið hefur óskað eftir upplýsingum um hvernig námsráðgjöf er háttað hjá þeim skólum sem ekki hafa náms- og starfsráðgjafa í starfsliði sínu. Í 13. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 segir: „Nemendur eiga rétt á að njóta náms- og starfsráðgjafar í grunnskóla af til þess bærum sérfræðingum.“
Til kynningar.
4. Staða mála: biðlistar.
Bæjarráð Árborgar hefur í bréfi sínu dags. 24. febrúar 2011, óskað eftir upplýsingum um biðlista sérfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands. Erindinu hefur verið svarað skriflega.
Framkvæmdastjóri gerði stjórn grein fyrir biðlistum, en þeir eru eftirfarandi:
Tilvísanir á bið hjá sálfræðingum eru 46 talsins;
Tilvísanir á bið hjá sérkennslu- og kennsluráðgjöfum eru 53 talsins;
Tilvísarnir á bið hjá talmeinaráðgjafa eru 41.
Alls eru þetta 140 mál á biðlistum sérfræðinga. Auk þess er væntanlegur nokkur fjöldi tilvísana í kjölfar í lesskimunarprófsins GRP14h sem lagt er fyrir alla 9. bekkjar nemendur í grunnskólum í starfssvæði Skólaskrifstofunnar.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið kl. 10:40.
