126. stjórnarfundur

126. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn föstudaginn 14. janúar 2011, kl. 9:00 að Austurvegi 56, Selfossi.

Mætt: Ninna Sif Svavarsdóttir formaður stjórnar, Þorsteinn M Kristinsson varaformaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.

Formaður setti fund og stjórnaði honum.

Formaður lagði til að gerð yrði dagskrárbreyting og bætt inn liðum 3 um stöðu ART teymis og liður 5, erindi til kynningar. Samþykkt.

1. Staða samkvæmt fjárhagsáætlun 2010.

Lagt fram yfirlit yfir rekstrarlega stöðu Skólaskrifstofu Suðurlands samkvæmt fjárhagsáætlun 2010. Rekstur er samkvæmt áætlun.

2. Staða vinnu starfshóps vegna Heildarmats á skólastarfi

Haldinn var fundur með tveimur fulltrúum skólastjórnenda, tveimur fulltrúum kennara og einum fulltrúa foreldra, ásamt fulltrúum skólaskrifstofu í lok nóvember 2010. Allir aðilar voru jákvæðir gagnvart Heildarmati og sammála um að það væri framfaraspor að taka slíkt mat upp á Suðurlandi. Ákveðið var að fulltrúar kynntu hugmyndina í sínum félagasamtökum fyrir næsta fund, sem er áætlaður í lok febrúar.

3. Staða ART teymis.

Vinna starfshóps á vegum SASS um fjármögnun ART teymis fyrir starfsárið 2011 skilaði þeim árangri að á fjárlögum ríkisins 2011 er gert ráð fyrir 4,5 millj. kr. til rekstur ART verkefnisins á Suðurlandi.

4. Húsnæðismál.

Ræddar hugmyndir um stofnun Þekkingarseturs Suðurlands, en stjórnin fékk kynningargögn send vegna málsins nýlega.

Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands sér í þessum hugmyndum möguleika til aukins samstarfs stofnana þar sem starfsemin skarast eða getur skarast að einhverju leyti, auk þess sem rýmkast myndi um starfsemina.

5. Erindi til kynningar.

Ályktun menntamálanefndar SASS um málefni Skólaskrifstofu Suðurlands frá 4. janúar sl. vegna hugsanlegrar úrsagnar Árborgar úr Skólaskrifstofu Suðurlands kynnt.

Fundargerð lesin upp og staðfest.

Fundi slitið kl. 10:30.