Fundargerð 5. aðalfundar Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn 13. og 14. september 2010 á Selfossi
1. Setning
Margeir Ingólfsson, formaður, setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna. Ræddi hann um síðasta starfsár, breytingar sem áttu sér stað hjá Skólaskrifstofunni vegna nýrra laga og reglugerða um leik- og grunnskóla og þakkaði hann starfsfólki gott starf. Fundir stjórnar voru 6 á síðasta ári.
Margeir gerði að umtalsefni samskipti ríkis og sveitarfélaga annars vegar og höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar hins vegar, en hann telur að tilhneiging sé til að færa kostnað frá ríki yfir til sveitarfélaganna og sérstaklega sveitarfélaga á landsbyggðinni. Sem dæmi um þetta nefndi hann kostnað við skólagöngu fósturbarna í tímabundnu fóstri. Hvatti hann nýja stjórn til að vera á varðbergi varðandi framlög ríkis til sveitarfélaga í skólamálum, t.a.m. varðandi einingabært nám grunnskólanema í framhaldsskólum.
Þá vonast hann til að sveitarfélögin sameinist um að samþykkja tillögu um aðkomu sveitarfélaganna að rekstri ART teymisins sem lögð var fram á fundi SASS.
Hann þakkað samstafsfólki sínu í stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands og Kristínu Hreinsdóttur framkvæmdastjóra fyrir samstarfið.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður tilnefndi Ástu Stefánsdóttur og Ara B. Thorarensen sem fundarstjóra og Rósu Sif Jónsdóttur og Sólveigu Ragnarsdóttur sem fundarritara og var það samþykkt samhljóða.
Í lok máls síns fól formaður fundarstjórum stjórn fundarins.
3. Kosning í starfsnefndir
Lögð var fram svohljóðandi tillaga stjórnar SKS að kjörbréfa- og kjörnefnd og fjárhagsnefnd:
Kjörnefnd
Aðalmenn
Jóna Sigurbjartsdóttir, formaður Skaftárhreppi
Gunnar Þorgeirsson, varaformaður Grímsnes- og Grafningshreppi
Aldís Hafsteinsdóttir, Hveragerðisbæ
Gunnlaugur Grettisson, Vestmannaeyjabæ
Ísólfur Gylfi Pálmason, Rangárþingi eystra
Ari Thorarensen, Sveitarfélaginu Árborg
Ásgrímur Ingólfsson, Sveitarfélaginu Hornafirði
Varamenn
Drífa Kristjánsdóttir, Bláskógabyggð
Sveinn Steinarsson, Sveitarfélaginu Ölfusi
Páll Scheving, Vestmannaeyjabæ
Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Rangárþingi ytra
Sandra Dís Hafþórsdóttir, Sveitarfélaginu Árborg
Ingi Már Björnsson, Mýrdalshreppi
Kristján Sigurður Guðnason, Sveitarfélaginu Hornafirði
Fjárhagsnefnd
Aðalmenn
Gunnsteinn R Ómarsson, formaður Rangárþingi ytra
Ásta Stefánsdóttir, varaformaður Sveitarfélaginu Árborg
Margrét Sigurðardóttir, Flóahreppi
Kristín Magnúsdóttir, Sveitarfélaginu Ölfus
Ingibjörg Harðardóttir, Grímsnes og Grafningshreppi
Varamenn
Eyþór Arnalds, Sveitarfélaginu Árborg
Eydís Indriðadóttir, Ásahreppi
Róbert Hlöðversson, Hveragerðisbæ
Elvar Eyvindsson, Rangárþingi eystra
Jón G. Valgeirsson, Hrunamannahreppi
Var tillagan samþykkt samhljóða og tók kjörbréfa- og kjörnefnd þegar til starfa.
4. Skýrsla framkvæmdastjóra/ársskýrsla
Kristín Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri, kynnti Skólaskrifstofu Suðurlands og flutti ársskýrslu fyrir skólaárið 2009-2010. Þar kom m.a. fram þróun nemendafjölda og starfsmannafjölda á skrifstofunni. Einnig ræddi hún um ýmsa þjónustuþætti, s.s. sálfræðiráðgjöf, ráðgjöf vegna talmeina, leikskólaráðgjöf, þróunarverkefni í samvinnu ráðgjafa, teymisvinnu í ýmsum forvarna og áfallateymum, ART verkefnið og endurmenntun. Skólaskrifstofan hélt Stóru upplestrarkeppnina og stærðfræðikeppni í ár eins og undanfarin ár og gengu þær báðar mjög vel.
Þjónustukönnun var gerð í leik- og grunnskólum og sýndi hún ánægju starfsmanna leik- og grunnskóla með þjónust skrifstofunnar. Framkvæmdastjóri kynnti afleiðingar lagabreytingar um sérfræðiþjónustu grunn- og leikskóla sem staðfest var með setningu reglugerðar um sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum sl. sumar, en breytingin hafði í för með sér umtalsverða aukningu á starfi sérfræðinga á skrifstofunni. Skv. kostnaðarútreikningi samstarfsnefndar menntamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga er um að ræða kostnaðaraukningu upp á 200 millj. kr. á landsvísu, sem umreiknað á fjölda barna á aldrinum 0-15 ára samsvarar tæpum 12 millj. kr. á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands.
5. Niðurstöður kjörbréfa- og kjörnefndar um lögmæti fundarins
Jóna S. Sigurbjartsdóttir, formaður kjörbréfa- og kjörnefndar kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir kjörbréfum. Alls voru 43 kjörnir fulltrúar. Gild kjörbréf eru 43, en alls voru 41 aðalfulltrúar og 2 varamenn mættir. Fundurinn úrskurðast því lögmætur.
6. Afgreiðslumál
i) Endurskoðaðir reikningar
Framkvæmdastjóri, kynnti ársreikning fyrir árið 2009.
ii)Tillaga að fjárhagsáætlun
Framkvæmdastjóri kynnti fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir árið 2011. Lagðar voru fram tvær tillögur, tillaga A og tillaga B. Fram kom að stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands mælir með að tillaga B verði samþykkt.
iii) Tillaga að samstafsverkefni sveitarfélaga á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands um heildarmat á skólastarfi
Margeir Ingólfsson fylgdi úr hlaði tillögu að samstarfsverkefni sveitarfélag á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands um heildarmat á skólastarfi.
Tillaga stjórnar til aðalfundar um sameiginlegt heildarmat á skólastarfi á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands.
Heildarmat er heildstæð leið til að meta skólastarf og gefur góða mynd af stöðu skóla. Matið uppfyllir skyldur sveitarfélaga um ytra mat sveitarfélaga skv. 37. gr. grunnskólalaga nr. 91/2008.
Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands leggur til við aðalfund að nýrri stjórn skólaskrifstofunnar verði falið að skipa starfshóp til að skoða kosti og galla þess að standa sameiginlega að Heildarmati á skólastarfi á starfssvæði skólaskrifstofunnar. Lagt er til að í starfshópnum verði fulltrúar skólasamfélagsins. Starfshópurinn skili niðurstöðum til stjórnar skólaskrifstofunnar fyrir 1. mars 2011.
Margeir greindi frá tilgangi matsins. Hann skoraði á fundinn að samþykkja tillöguna.
Fundarstjóri gaf orðið laust.
Til máls tóku: Gunnar Þorgeirsson, Guðmundur Ármann Pétursson, Elfa Dögg Þórðardóttir, Margeir Ingólfsson og Kristín Hreinsdóttir.
Fundarstjóri bar ársreikning upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri lagði til að fjárhagsáætlun verði vísað til fjárhagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
Tillaga að samstarfsverkefni sveitarfélaga á starfssvæði Skólaskrifstofu Suðurlands um heildarmat á skólastarfi var borin undir atkvæði.
Samþykkt samhljóða.
7. Kosningar
Jóna S. Sigurbjartsdóttur lagði fram eftirfarandi tillögu kjörnefndar:
i) Kosning 3 fulltrúa í stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands og 3 varamanna
Aðalmenn
Ninna Sif Svavarsdóttir, formaður Hveragerðisbæ
Þorsteinn M. Kristinsson, varaformaður Skaftárhreppi
Þórunn Jóna Hauksdóttir, Sveitarfélaginu Árborg
Varamenn
Arna Ír Gunnarsdóttir, Sveitarfélaginu Árborg
Margrét Sigurðardóttir, Flóahreppi
Magnús H Jóhannsson, Rangárþing ytra
Samþykkt samhljóða.
ii) 2 skoðunarmenn ársreikninga og 2 varamenn
Skoðunarmenn
Aðalmenn
Guðmundur Þór Guðjónsson, Hveragerði
Drífa Kristjánsdóttir, Bláskógabyggð
Varamenn
Egill Sigurðarson, Ásahreppi
Ragnheiður Hergeirsdóttir, Sveitarfélaginu Árborg
Fundarstjóri gaf orðið laust en enginn kvaddi sér hljóðs.
Tillögur kjörnefndar bornar undir atkvæði og samþykktar samhljóða.
8. Almennar umræður
Fundarstjóri gaf orðið laust.
Engin kvaddi sér hljóðs.
Fundarstjóri gaf Margeiri Ingólfssyni orðið.
Margeir Ingólfsson óskaði nýrri stjórn velfarnaðar og hvatti sveitarstjórnarmenn til að skoða vel starfsemi og lögbundi verkefni Skólaskrifstofu Suðurlands.
Margeir frestaði fundi til morguns um leið og hann þakkaði fyrir sig.
Fundi var framhaldið með afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Formaður fjárhagsnefndar fylgdi tillögu úr hlaði.
Fundarstjóri gaf orðið laust.
Til máls tóku: Margeir Ingólfsson, Elfa Dögg Þórðardóttir, Gunnsteinn Ómarsson, Kristín Hreinsdóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eydís Þ. Indriðadóttir, gert var fundarhlé.
Fundi var framhaldið:
Til máls tóku: Aldís Hafsteinsdóttir sem lagði fram nýja tillögu.
Til máls tóku: Ísólfur Gylfi Pálmason, Margeir Ingólfsson, Ásgeir Magnússon, Þorvarður Hjaltason, Steindór Tómasson, Kristín Hreinsdóttir, Gunnar Egilsson, Unnur Þormóðsdóttir, Elfa Dögg Þórðardóttir, gert var fundarhlé.
Fundi var framhaldið.
Eftir umræður og breytingartillögur var eftirfarandi samþykkt gerð:
Fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands
Ársþing SASS samþykkir fjárhagsáætlun A eins og hún kemur fyrir í gögnum fundarins.
Hækkun milli ára verði 5%.
Fundarstjóri bar tillöguna undir atkvæði. Samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri sleit fundi kl. 16.05
