Þjónustukönnun 2010

 

Þjónustukönnun Skólaskrifstofu Suðurlands stóð yfir 5.-14. apríl sl.  Niðurstöður könnunarinnar eru eftirfarandi:

Tvær spurningar mældu ánægju/óánægju með þjónustu sérfræðinga Skólaskrifstofunnar. 

Hafir þú nýtt þér þjónustu sérfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands, hvernig hefur sú aðstoð/ráðgjöf nýst?

Eins og sést á myndinni hér fyrir neðan töldu 93,06% þeirra sem notað hafa þjónustu sérfræðinga skrifstofunnar að aðstoð/ráðgjöf sem þeir fengu hafi nýst nokkuð eða mjög vel.


 
Hversu sátt/ur ertu við þjónustu sérfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands?

Spurt var um a) biðtíma  b) greiningar  c) ráðgjöf  d) eftirfylgd.


Eins og sjá má voru 45,5% frekar eða mjög sáttir við biðtímann, 16,5% voru hlutlausir og tæp 38% frekar eða mjög ósáttir.


Á myndinni hér fyrir ofan má sjá að tæp 82% svarenda eru frekar eða mjög sáttir við greiningarvinnu sérfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands, rúm 9% eru hlutlausir og rúm 9% frekar eða mjög ósáttir.


Tæp 84% voru frekar eða mjög sáttir við ráðgjöf sérfræðinga Skólaskrifstofu, tæp 10% hlutlausir og 6,3% frekar eða mjög ósáttir.

Tæp 71% voru frekar eða mjög sáttir við eftirfylgd sérfræðinga, en eins og kunnugt er kom inn nýtt ákvæði í grunn- og leikskólalög 2008 um aukið hlutverk skólaskrifstofa sem felur í sér mat og eftirfylgd.  Þarna er því um breytingar starfsháttum að ræða.  18,6% voru hlutlausir og rúm 11% frekar eða mjög ósáttir. 

Þjónustukönnun Skólaskrifstofu Suðurlands var send út á starfsmenn leik- og grunnskóla dagana 7.-9. apríl í tölvupósti.  Könnunin var að þessu sinni rafræn.  Könnunin var höfð opin til miðvikudagskvölds 14. apríl. 

Úrtak:
Farið var eftir starfsmannalistum á heimasíðum grunnskólanna eða þeir fengnir í gegnum ritara skólans og sent í gegnum yfirmenn viðkomandi leikskóla á starfsmenn leikskólanna.  Könnunin var send út á u.þ.b. 400 starfsmenn grunnskóla og 160 starfsmenn leikskóla. Sent var á starfsmenn sem koma að kennslu barna eða aðstoð við hana og stjórnendur skólanna.

Svörun:
Svör bárust frá 248 manns, þar af 188 í grunnskóla (47%) og 60 í leikskóla (37%).

Af þeim 248 svörum sem bárust höfðu 59,1% fengið þjónustu sérfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands á síðustu 12 mánuðum og 40,1% ekki.  Hér á eftir verður greint frá svörum þeirra sem hafa nýtt sér þjónustu sérfræðinga skrifstofunnar á síðustu 12 mánuðum.

Spurning 1: Merkið við skólastig.

Spurning 2: Stærð skóla

Spurning 3: Starfsheiti þeirra sem svöruðu

Spurning 5

A) Kennsluráðgjafa
B) Sálfræðings
C) Talmeinafræðings
D) Leikskólaráðgjafa
E) Iðjuþjálfa

Spurning 6

Spurning 8

A) Engan
B) Ráðgjöf vegna vandamála í nemendahópi
C) Greiningu á námsvanda nemenda
D) Ráðgjöf v. námsáætlana/einstaklingsnámskrár
E) Sálfræðilega greiningu einstakra nemenda
F) Skimun nemendahópa
G) Ráðgjöf um val á námsefni/kennsluaðferðum
H) Ráðgjöf v. hegðunar/líðan einstakra nemenda
I) Vinnu við þróunarverkefni/mat á skólastarfi
J) Ráðgjöf vegna framburðar/talgalla nemanda
K) Ráðgjöf v. mats á eigin kennslu
L) Annað