119. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn mánudaginn 15. febrúar kl. 13:30 að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Þórunn Jóna Hauksdóttir og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Ingvar Pétur Guðbjörnsson boðaði forföll.
Formaður setti fund og stjórnaði honum.
1. Staða skv. fjárhagsáætlun 2010.
Farið yfir stöðu skv. rekstrarreikningi 15.02 2010. Reksturinn er samkvæmt áætlun.
Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands lýsir yfir áhyggjum sínum vegna fjármögnunar ART verkefnisins. Ekki hafa verið tryggðar nema 10 millj. kr. til rekstrarins, eða hluti Barnaverndarstofu. Fjárhagsáætlun verkefnisins hljóðar upp á 22 millj. kr., þar af 10 millj. kr. frá menntamálaráðuneyti, sem ekki hafa komist inn á fjárlög ríkisins. Að óbreyttu verður að skera verkefnið verulega niður og takmarka það eingöngu við samning við Barnaverndarstofu.
2. Ársreikningur Skólaskrifstofu Suðurlands og ART verkefnis fyrir árið 2009.
Lagður fram ársreikningur Skólaskrifstofu Suðurlands og ART verkefnis fyrir fjárhagsárið 2009. Rekstrartap án fjármunatekna og fjármagnsgjalda er rúmar 5 millj. kr. Tapið skýrist af því að ekki bárust nægjanleg framlög vegna rekstrar ART verkefnis. Áætlað var að 18 millj. kr. yrðu greiddar af menntamálaráðuneytinu til rekstrar verkefnisins en ekki fengust nema 10 millj. kr. á síðasta fjárhagsári. Rekstrartekjur Skólaskrifstofu Suðurlands án ART verkefnis umfram gjöld eru u.þ.b. 350 þús. kr. Rekstrargjöld ART verkefnis umfram tekjur eru u.þ.b. 5,5 millj. kr. Handbært fé hefur lækkað úr rúmum 10 millj. kr. í 5,5 millj. kr. og eignastaða alls úr tæpum 11 millj. kr. í 6 millj. kr.
3. Breyting á reglugerð um skólaakstur og fyrirhugaðar breytingar á barnaverndarlögum vegna skólagöngu barna í tímabundnu fóstri.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur fengið beiðni um umsögn vegna fyrirhugaðra breytinga á barnaverndarlögum vegna skólagöngu barna í tímabundnu fóstri. Var þeirri beiðni vísað til skólamálanefndar sambandsins og fjallaði hún um málið á síðasta fundi sínum þann 9. febrúar. Ástæða þess að félagsmálaráðuneytið óskar eftir umsögn sambandsins er fjöldi bókana í sveitarstjórnum þar sem fyrirhugaðri breytingu er mótmælt. Margar þessara bókana eru frá sunnlenskum sveitarstjórnum. Ljóst er að misjöfn sjónarmið eru uppi í ólíkum bæjar-/sveitarfélögum og mikilvægt að rödd landsbyggðarinnar heyrist. Bókun skólamálanefndar sambandsins lögð fram.
Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands lýsir yfir ánægju sinni með skjót viðbrögð aðildarsveitarfélaganna.
4. Ytra mat sveitarfélaga sbr. 37. gr. grunnskólalaga nr. 91/2008.
Framkvæmdastjóri greindi frá kynningu sem menntasvið Reykjavíkurborgar hélt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og menntamálaráðuneytið þar sem kynnt var Heildarmat skóla, – tilraunaverkefni sem menntasvið hefur verið að þróa síðustu 3 árin. Í Heildarmatinu er framkvæmt mat á skólastarfi sem svarar til ytra mats sveitarfélaga, auk þess sem aðrir þættir eru einnig metnir.
Sú hugmynd kom upp á fundinum að skoðað yrði hvort ekki væri athugandi að sett yrðu upp landshlutateymi sem framkvæmdu ytra mat (heildarmat) fyrir sveitarfélögin, en skv. grunnskólalögum frá 2008 er ytra mat orðið lögbundið verkefni sveitarfélaganna.
Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands samþykkir að óska eftir samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga um að standa fyrir kynningarfundi fyrir sveitarstjórnarmenn, skólanefndarformenn og skólastjóra á starfssvæði samtakanna um Heildarmat á skólastarfi.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið kl. 16:00.
Margeir Ingólfsson
Þórunn Jóna Hauksdóttir
Kristín Hreinsdóttir
