Opnuð hefur verið vefsíða um Bright Start kennslu. Bright Start er tilraunaverkefni sem rekið hefur verið í fjórum skólum á Suðurlandi og gefist afar vel, en þeir eru Hvolsskóli og Leikskólinn Örk á Hvolsvelli og Laugalandsskóli og Leikskólinn Laugalandi í Holtum. Bright Start er notað fyrir börn á aldrinum 3-9 ára og er tilvalið verkefnið til að tengja skólastigin leik- og grunnskóla.
Í Bright Start er unnið út frá þeirri hugmyndafræði að greind sé tvíþætt; annars vegar það sem við fáum í vöggugjöf og hins vegar vitþroskaferli sem vinna má með og bæta. Unnin hefur verið samanburðarrannsókn samhliða tilraunaverkefninu.
Sjá nánar á Bright Start síðunni. Höfundur hennar er Jónella Sigurjónsdóttir grunnskólakennari og Bright Start þjálfari.
