100. stjórnarfundur

100. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands haldinn miðvikudaginn 21. nóvember 2007 kl. 15:00 að Austurvegi 56, Selfossi.

Mætt: Margeir Ingólfsson formaður, Björgvin Jóhannesson, Böðvar Bjarki Þorsteinsson sem varamaður Þórunnar Jónu Hauksdóttur og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.

Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum.

1. Staða skv. fjárhagsáætlun 2007.

Lögð fram staða skv. fjárhagsáætlun 10.11.2007. Staða er í meginatriðum skv. áætlun.

2. Ályktanir ársþings SASS um málefni grunnskólans.

a) Menntaverðlaun Suðurlands.

b) Heiðurslistakerfi

c) Skólastefna

Til kynningar.

3. Önnur mál

a) Formaður lagði til að á janúarfundi yrði fundað með starfsfólki SKS og aðstaða starfsfólks skoðuð. Framkvæmdastjóra falið að skipuleggja ART kynningu fyrir stjórn SKS.

b) Lögð fyrir fundargerð 2. aðalfundar Skólaskrifstofu Suðurlands frá 1.-2. nóvember 2007 og hún rædd.

c) Framkvæmdastjóri kynnti fréttabréf Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir nóvembermánuð, bækling um móttöku nemenda af erlendum uppruna í leik- og grunnskólum og upplýsingabækling fyrir nýtt starfsfólk grunn- og leikskóla sem sérfræðingar eru að dreifa í skólunum um þessar mundir.

Fundargerð lesin upp og staðfest.

Fundi slitið kl. 16:30.

Margeir Ingólfsson

Björgvin Jóhannesson

Böðvar Bjarki Þorsteinsson

Kristín Hreinsdóttir