99. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn mánudaginn 29. okt. kl. 11:30 að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt: Kristín Traustadóttir formaður, Margeir Ingólfsson varaformaður, Björgvin Jóhannesson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum.
1. Staða skv. fjárhagsáætlun 2007.
Lögð fram staða skv. fjárhagsáætlun 29.10.2007. Staða er í meginatriðum skv. áætlun, en útlit er fyrir að launaliður fari eitthvað fram úr áætlun.
2. Dagskrá 2. aðalfundar Skólaskrifstofu Suðurlands 1. nóv. 2007 á Kirkjubæjarklaustri.
Farið var yfir dagskrá aðalfundar og helstu atriði.
Ársskýrsla Skólaskrifstofu Suðurlands fyrir skólaárið 2006-2007 var rædd og staðfesti stjórnin skýrsluna.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið kl. 13:30
Margeir Ingólfsson
Björgvin Jóhannesson
Kristín Traustadóttir
Kristín Hreinsdóttir
