96. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn miðvikudaginn 22. ágúst 2007, kl. 15:00 að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt:
Kristín Traustadóttir formaður, Margeir Ingólfsson varaformaður, Björgvin Jóhannesson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Kristín Traustadóttir formaður, Margeir Ingólfsson varaformaður, Björgvin Jóhannesson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Einnig komu til fundarins Guðmundur Ingi Leifsson, skólastjóri Gaulverjaskóla, undir lið 2 og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS undir lið 3.
Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum.
1. Staða skv. fjárhagsáætlun 2007.
Lögð fram staða skv. fjárhagsáætlun og virðist rekstur vera á áætlun.
2. Gaulverjaskóli, meðferðar- og skólaúrræði.
Guðmundur Ingi Leifsson, skólastjóri Gaulverjaskóla, greindi frá stöðu í stefnumótunarvinnu í Gaulverjaskóla. Dreift var foreldrahandbók og bæklingi um ART þjálfun og meðferð sem ætlaður er foreldrum . Einnig sagði Guðmundur Ingi stuttlega frá fyrirhuguðu starfi á komandi vetri og dreift var áfangaskýrslu um starfsemi Gaulverjaskóla skólaárið 2006-2007.
3. Húsnæðismál Skólaskrifstofu Suðurlands.
Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS kom til fundarins og greindi frá fyrirhuguðum breytingum á húsnæði SASS sem m.a. eru komnar til vegna plássleysis á Skólaskrifstofu Suðurlands. Stjórnin leggur áherslu á að um bráðabirgðalausn er að ræða og skorar á stjórn SASS og undirstofnanir að fara nú þegar að huga að framtíðarfyrirkomulagi húsnæðismála viðkomandi stofnana.
4. 10 ára afmæli Stóru-upplestrarkeppninnar og Stærðfræðikeppninnar á Suðurlandi.
Rætt var um hvort og með hvaða hætti halda ætti upp á afmæli þessara viðburða á Suðurlandi. Huga þarf að undirbúningi sem fyrst.
5. Þátttaka á námskeiðum á vegum Skólaskrifstofu Suðurlands sumarið 2007 og skólaárið 2006-2007.
Framkvæmdastjóri greindi frá þátttöku í námskeiðum sumarsins fyrir grunnskólakennara. Haldin voru 7 námskeið, auk málstofu í Hveragerði. Fremur slök þátttaka var í sumarnámskeiðum og skiluðu skráðir þátttakendur sér fremur illa. Í sumum tilvikum voru 50% afföll af skráðum þátttakendum.
Þrátt fyrir það er þátttaka í fræðslu á vegum Skólaskrifstofu Suðurlands á skólaárinu mjög góð og hafa alls 839 manns sótt námskeið og fræðslufundi á tímabilinu.
6. Starfsmannamál.
Framkvæmdastjóri greindi frá breytingum í starfsmannamálum Skólaskrifstofu Suðurlands. Þuríður Pétursdóttir sálfræðingur er í fullu starfi frá og með 1. ágúst og Kristín I Bragadóttir sálfræðingur og Rut Guðmundsdóttir kennslu- og sérkennsluráðgjafi hófu störf á sama tíma í 50% stöðuhlutfalli hvor. Eiríkur Þorvarðarson sálfræðingur hefur sagt upp störfum og auglýst hefur verið eftir sálfræðingi í hans stað. Fjórar umsóknir bárust og fara ráðningarviðtöl fram næstu daga.
7. Framtíð tilraunaverkefnisins Gaulverjaskóli.
Tilraunaverkefnið Gaulverjaskóli er hálfnað og ræddu stjórnarmenn um framtíð verkefnisins í ljósi þeirra reynslu sem komin er af úrræðinu og fréttum af auknum fjárveitingum úr heilbrigðisráðuneytinu til barna með hegðunar- og geðraskanir.
Rætt var um kostnaðarskiptingu milli lögheimilis- og aðildarsveitarfélaga, en ljóst er að gera þarf breytingar á því formi til mæta breyttum áherslum í verkefninu. Ráðgjöf og námskeiðshald til skóla hefur aukist og mun fara vaxandi og því óeðlilegt að lögheimilissveitarfélög þeirra barna sem dvelja í Gaulverjaskóla beri 55% af kostnaði við verkefnið. Samþykkt að vinna tillögur um breytingar á kostnaðarskiptingu og leggja fyrir aðalfund í nóvember nk. Ákveðið var að fá verkefnisstjóra ART og meðferðarfræðing í Gaulverjaskóla til skrafs og ráðagerða á næsta fundi stjórnar.
8. Önnur mál.
Framkvæmdastjóri greindi frá sameiginlegri ráðningu iðjuþjálfa. Ráðningin skiptist þannig að Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur 60%, Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra 20% og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga 20%. Kostnaður skiptist samsvarandi. Ráðið hefur verið í stöðuna og hóf nýráðinn iðjuþjálfi Guðrún Herborg Hergeirsdóttir störf 1. ágúst. Starfsaðstaða iðjuþjálfa verður á Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra fyrst um sinn, en síðan er gert ráð fyrir að aðstaðan flytjist á Heilbrigðisstofnun þegar nýbygging er tilbúin. Fundað hefur verið um skiptingu verkefna. Verkefni fyrir hönd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga snúast að miklu leyti um skimun, greiningu og ráðgjöf inni í grunn- og leikskólum, leiðbeiningar til foreldra og starfsfólks, aðkomu að Greiningarteymi barna og námskeið og fræðslufundi. Skólaskrifstofa Suðurlands mun kynna þessa nýju þjónustu út í skólakerfinu, m.a. með upplýsingum á heimasíðu, tilkynningu í fréttabréfi og fundum með stjórnendum og sérkennslufólki í grunn- og leikskólum.
Rætt var um aðalfund Skólaskrifstofunnar og kom m.a. fram nauðsyn þess að setja inn í reglur að stjórnarmenn séu kjörnir fulltrúar bæjar- eða sveitarstjórnar. Ákveðið að leggja fram tillögu um breytingu þess efnis á aðalfundi.
Næsti fundur stjórnar ákveðinn í 37. viku.
Fundargerð lesin upp og staðfest. Fundi slitið kl. 18:00.
Kristín Traustadóttir
Margeir Ingólfsson
Björgvin Jóhannsson
Kristín Hreinsdóttir
