92. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn miðvikudaginn 28. febrúar 2007 kl. 11:30 að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt: Kristín Traustadóttir formaður, Margeir Ingólfsson varaformaður, Björgvin Jóhannesson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Kristín Traustadóttir formaður, Margeir Ingólfsson varaformaður, Björgvin Jóhannesson og Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum.
1. Staða skv. fjárhagsáætlun 2007.
Lögð fram staða skv. fjárhagsáætlun og virðist rekstur vera á áætlun. Rekstur er kominn í jafnvægi eftir að framlög bárust vegna Gaulverjaskóla frá Velferðarsjóði íslenskra barna og Menntamálaráðuneyti, en enn er framlag ríkisins fyrir rekstrarárið 2006 ógreitt.
2. Nýtt matstæki: WISC IV.
2. Nýtt matstæki: WISC IV.
Gefið hefur verið út á vegum Námsmatsstofnunar nýtt matstæki fyrir grunnskólabörn, greindarprófið WISC IV. Þetta er fyrsta prófið af þessu tagi staðlað fyrir íslenskar aðstæður og tóku sálfræðingar Skólaskrifstofu Suðurlands þátt í vinnunni við að staðla prófið. Ekki hefur fengist neinn styrkur frá ríki til útgáfu matstækisins og kostar því eintakið um 500 þús. kr. Helst þurfa að vera til tvö eintök á Skólaskristofu Suðurlands þar sem þar starfa 4 sálfræðingar og tækið mikið notað. Ljóst er að kaup á einu prófi kostar umtalsvert meira en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2007 og því þarf að athuga hvort taka þarf upp fjárhagsáætlun til að kaupa annað eintak.
3. Úttekt á starfsemi Skólaskrifstofu Suðurlands.
Skoðuð var úttekt á annarri skólaskrifstofu gerð af Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands og farið yfir hvaða þætti væri æskilegt að meta hjá Skólaskrifstofu Suðurlands. Framkvæmdastjóra falið að leita tilboða hjá þeim háskólastofnunum sem taka að sér mat af þessu tagi, bæði hvað varðar kostnaðar- og tímaþátt.
4. Önnur mál.
a ) Rætt var um stöðu iðjuþjálfa til að sinna börnum á Suðurlandi. Stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands harmar að enn skuli ekki vera fundin lausn sem nýtist öllum sunnlendingum. Bráðabrigðalausn sú sem sveitarfélögin Árborg og Rangárþing eystra sömdu um við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra má ekki verða til að fresta úrlausn málsins fyrir önnur sveitarfélög á Suðurlandi. Enn þurfa foreldrar úr öðrum sveitarfélögum að sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur.
b) Framkvæmdastjóri sagði frá Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi 2007 sem haldin var í samstarfi Skólaskrifstofu Suðurlands og Fjölbrautaskóla Suðurlands í gær, þann 27. febrúar kl. 16. Alls tóku þátt 58 nemendur í 8.-10. bekk úr öllum aðildarskólum Skólaskrifstofu Suðurlands sem hafa unglingastig, en það eru: Grunnskólinn í Hveragerði, Vallaskóli, Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri, Grunnskóli Bláskógabyggðar, Flúðaskóli, Laugalandsskóli, Grunnskólinn á Hellu, Hvolsskóli, Grunnskóli Mýrdalshrepps og Kirkjubæjarskóli á Síðu. Stefnt er að verðlaunaafhendingu fimmtudaginn 8. mars.
c) Lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar 2007 verða að venju þrjár talsins, sú fyrsta í íþróttahúsinu á Hellu þann 7. mars kl. 15:30 fyrir Rangárvallasýslu og V-Skaftafellssýslu, önnur í Grunnskólanum í Hveragerði þann 12. mars kl. 16:00 fyrir Árborg og Hveragerði og sú þriðja í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum fyrir uppsveitir Árnessýslu og Flóa þann 15. mars kl. 15:30.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið kl. 12:45.
Kristín Traustadóttir
Margeir Ingólfsson
Björgvin Jóhannsson
Kristín Hreinsdóttir
