86. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn miðvikudaginn 24. maí 2006 kl. 16:00 að Austurvegi 56 Selfossi.
Mætt: Ásmundur Sverrir Pálsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson (sem varamaður fyrir Eyju Þóru Einarsdóttur), Magnús Á Ágústsson og Karl Pálmason.
Ásmundur Sverrir Pálsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson (sem varamaður fyrir Eyju Þóru Einarsdóttur), Magnús Á Ágústsson og Karl Pálmason.
Aðrir: Lísbet Nílsdóttir (FL) og Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður, sem ritaði fundargerð.
Lísbet Nílsdóttir (FL) og Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður, sem ritaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum.
1. Staða skv. fjárhagsáætlun.
Staða er skv. áætlun.
Ljóst er að fjárhagsáætlun mun raskast eitthvað vegna kjarasamninga sálfræðinga. Stjórnin samþykkir að gera tillögu að breytingu á fjárhagsáætlun 2006 til ársfundar Skólaskrifstofu Suðurlands í september nk. til að mæta kostnaðarauka vegna áhrifa kjarasamninga.
Ljóst er að fjárhagsáætlun mun raskast eitthvað vegna kjarasamninga sálfræðinga. Stjórnin samþykkir að gera tillögu að breytingu á fjárhagsáætlun 2006 til ársfundar Skólaskrifstofu Suðurlands í september nk. til að mæta kostnaðarauka vegna áhrifa kjarasamninga.
2. Gaulverjaskóli
a) Staða skv. fjárhagsáætlun.
Rekstur skólans er skv. fjárhagsáætlun. Framlög ríkisins hafa enn ekki borist.
b) Starfsmannamál.
Auglýst hefur verið eftir starfsmönnum í Gaulverjaskóla sem taka eiga til starfa í ágúst nk. Þó nokkrar umsóknir hafa þegar borist. Umsóknarfrestur rennur út fimmtudaginn 25. maí nk.
3. Starfsmannastefna SASS.
Starfsmannastefna SASS var samþykkt á aukaaðalfundi SASS 26. apríl sl. Ákveðið var að starfsmannastefnan gilti fyrir allar stofnanirnar reknar á vegum sveitarfélaganna á Austurvegi 56. Í samþykktinni, grein 1.5, segir: „Sértæk starfsmannastefna, sem snýr að fagsviði viðkomandi stofnunar, skal unnin og staðfest af stjórn stofnunarinnar.”
Stjórn felur forstöðumanni að leggja drög að sértækri stefnu sem snýr að fagsviði Skólaskrifstofunnar og verði þau til umfjöllunar á ágústfundi stjórnar.
4. Önnur mál.
a) Bréf framkvæmdastjóra Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar dags. 18. maí 2006 þar sem forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra eru boðaðir til fundar um mögulega ráðningu iðjuþjálfa.
Erindi lagt fram og forstöðumanni Skólaskrifstofunnar falið að sækja fundinn.
b) Námskeið sumarsins 2006.
Boðið var upp á 11 námskeið og lauk skráningu á þau um hádegi 24. maí 2006. Næg þátttaka er á 5 námskeið, auk þess sem óskað hefur verið eftir sumum námskeiðunum á einstaka vinnustaði. Grunnskóla Þorlákshafnar var boðið að taka þátt í málstofum um fjölbreytta kennsluhætti sem haldið verður í Sunnulækjarskóla 10.-11. ágúst nk. og skráðu sig þaðan nokkrir kennarar. Skráning á námskeiðið telur alls 87 þátttakendur.
c) Þjónustukönnun Skólaskrifstofu Suðurlands 2006.
Forstöðumaður sagði frá svörum í þjónustukönnuninni sem send var leik- og grunnskólum. Flestir grunn- og leikskólar hafa svarað, en ekki hefur verið formlega unnið úr könnuninni. Þjónusta skrifstofunnar fær almennt góða dóma hvað varðar gæði, en talsvert er um óánægju með magn hennar og biðtíma einstakra mála.
Ákveðið var að senda nýjum skólanefndum niðurstöður könnunarinnar fyrir sitt sveitarfélag í ágúst.
d) Næsti fundur stjórnar ákveðinn 23. ágúst 2006 kl. 16:00.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið kl. 17:50.
Ásmundur Sverrir Pálsson Guðmundur Ingi Gunnlaugsson
Magnús Á. Ágústsson Karl Pálmason
Lisbet Nílsdóttir Kristín Hreinsdóttir
