85. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn miðvikudaginn 22. mars 2006, kl. 16:00 að Austurvegi 56 Selfossi.
Mætt: Ásmundur Sverrir Pálsson, Margeir Ingólfsson, Eyja Þóra Einarsdóttir, Magnús Á. Ágústsson og Karl Pálmason.
Ásmundur Sverrir Pálsson, Margeir Ingólfsson, Eyja Þóra Einarsdóttir, Magnús Á. Ágústsson og Karl Pálmason.
Aðrir: Lísbet Nílsdóttir (FL), Hannes Stefánsson (FÁS) og Katrín Þ Andrésdóttir (KS) og Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður, sem ritaði fundargerð.
Lísbet Nílsdóttir (FL), Hannes Stefánsson (FÁS) og Katrín Þ Andrésdóttir (KS) og Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður, sem ritaði fundargerð.
Einnig komu til fundarins Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS undir 2. lið og Eiríkur K Þorvarðarson, sálfræðingur undir 1. og 4. lið.
Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum. Lögð var fram breytingatillaga við boðaða dagskrá og bætt inn sem 2. lið: Samþykktir Skólaskrifstofu Suðurlands. Aðrir liðir færast aftur sem því nemur.
1. Starfsmannamál.
Fært í trúnaðarmálabók.
Áheyrnarfulltrúar mættu til fundarins kl. 16:40.
2. Drög að samþykktum fyrir Skólaskrifstofu Suðurlands.
Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS kom til fundarins undir þessum lið og kynnti drög að samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands og starfsmannastefnu SASS og tengdra stofnana sem fjalla á um á aukaaðalfundi SASS í apríl nk.
Áheyrnarfulltrúar mættu til fundarins kl. 16:40.
2. Drög að samþykktum fyrir Skólaskrifstofu Suðurlands.
Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS kom til fundarins undir þessum lið og kynnti drög að samþykktum Skólaskrifstofu Suðurlands og starfsmannastefnu SASS og tengdra stofnana sem fjalla á um á aukaaðalfundi SASS í apríl nk.
3. Staða skv. fjárhagsáætlun.
Kristín fór yfir stöðu mála. Staða er skv. áætlun.
4. ART námskeið, Gaulverjaskóli og tilraunahópar í grunnskólum.
Eiríkur Þorvarðarson kynnti ART námskeið sem sálfræðingar Skólaskristofu Suðurlands, starfsfólk Gaulverjaskóla og þrír kennarar af Suðurlandi fóru á
9. -15. febrúar sl. Hann sagði einnig frá tilraunahópum sem eru að fara af stað í Vallaskóla og Sunnulækjarskóla með þátttöku starfsmanna skólans, sálfræðinga Skólaskrifstofu Suðurlands og deildarstjóra sérkennslu í Flúðaskóla. Eiríkur og Kristín fóru yfir gang mála í Gaulverjaskóla fyrstu vikurnar í starfinu.
5. Málþing um málefni grunnskólans 24. febrúar 2006.
Farið yfir helstu atriði málþings um málefni grunnskólans sem haldið var á Hótel Selfossi á vegum SASS og Skólaskrifstofu Suðurlands þann 24. febrúar sl.
6. Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi 2006 og lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar.
Forstöðumaður kynnti framkvæmd og úrslit í Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi og lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar. Tveimur af þremur er lokið. Sú fyrri var haldin í Fjölbrautaskóla Suðurlands 15. mars. sl. og sú seinni á Laugalandi í Holtum 16. mars sl. Síðasta keppnin verður haldin á Borg í Grímsnesi 27. mars nk.
7. Önnur mál.
Stefnt að næsta fundi stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands 19. apríl nk.
Fundargerð lesin upp og staðfest. Fundi slitið kl. 18:15.
Ásmundur Sverrir Pálsson
Margeir Ingólfsson
Eyja Þóra Einarsdóttir
Magnús Á. Ágústsson
Karl Pálmason
Lísbet Nílsdóttir
Hannes Stefánsson
Katrín Þ. Andrésdóttir
Kristín Hreinsdóttir
