79. fundur stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn miðvikudaginn 16. mars 2005, kl. 16:00, að Austurvegi 56.
Mætt: Ásmundur Pálsson, Eiríkur Ágústsson (sem varamaður Margeirs Ingólfssonar) og Eyja Þóra Einarsdóttir.
Aðrir: Hannes Stefánsson fulltr. foreldra, Katrín Andrésdóttir fulltr. grunnskólakennara, Lísbet Nilsdóttir fulltr. leikskólakennara, Ragnar S. Ragnarsson starfandi forstöðumaður og Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri undir 2. lið.
Magnús Á . Ágústsson boðaði forföll.
1. Ársreikningar 2004 staðfestir.
Formaður stjórnar fór yfir ársreikningana og útskýrði helstu atriði hans. Rekstrarhagnaður fyrir s.l. ár er vel á fjórðu milljón króna.
Stjórnin stóð samhljóða að eftirfarandi bókun: Endurskoðaður ársreikningur Skólaskrifstofunnar lagður fram og samþykktur af stjórn. Heildartekjur ársins –rekstrarframlög og sértekjur- árið 2004 eru 57.784.061 króna. Rekstrarafgangur er 3.519.633 krónur.
Stjórnin þakkar forstöðumann og starfsfólki góðar fjárreiður.
2. Fræðsluerindi frá Eyjólfi Sturlaugssyni skólastjóra Vallaskóla.
Eyjólfur fjallaði annarsvegar um markvissa Mál- og hreyfiþjálfun sem er í boði í Vallaskóla og hinsvegar lýsti hann valgreinafyrirkomulagi skólans og þeim kostum sem stærð skólans hefur í því sambandi.
3. Önnur mál.
Starfandi forstöðumaður kynnti nýja skýrslu Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins um samhæfingu í málefnum barna og unglinga með geðraskanir.
Katrín Andrésdóttir fór af fundi.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið 17:30.
Ásmundur Sverrir Pálsson
Eiríkur Ágústsson
Hannes Stefánsson
Eyja Þóra Einarsdóttir
Lisbet Nilsdóttir
Ragnar S. Ragnarsson
