78. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn að Austurvegi 56, Selfossi, miðvikudaginn 26. janúar 2005 kl. 16:00.
Mættir: Ásmundur Sverrir Pálsson, Magnús Ágústsson, Karl Pálmason og Margeir Ingólfsson.
Aðrir: Lísbet Nílsdóttir (FL), Katrín Þ Andrésdóttir (KS), Rut Guðmundsdóttir (Skólastjórafél. Suðurlands) og Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður, sem ritaði fundargerð.
Einnig kom til fundarins undir 1. lið Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS.
Hannes Stefánsson (FÁS) boðaði forföll.
Formaður stjórnar setti fund og stjórnaði honum.
1. Drög að rekstrarreikningi 2004.
Þorvarður lagði fram og kynnti drög að rekstrarreikningi 2004.
Þorvarður vék af fundi kl. 16:20.
2. Kosning varaformanns.
Tillaga kom fram um Margeir Ingólfsson sem varaformann stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands. Samþykkt einróma.
3. Kynning á erindi í febrúar.
Kynningarerindi febrúarfundar verður frá Vallaskóla. Efni kynningarinnar er tvíþætt. Annars vegar Mál og hreyfiþjálfun, þróunarverkefni sem varð til á Selfossi, er notað í Vallaskóla og víða annars staðar og hins vegar kynning á því hvernig stærð skólans hefur aukið námsval nemenda og möguleika til einstaklingsmiðunar.
4. Erindi frá kennsluráðgjöfum vegna endurmenntunarstyrks.
Erindi barst frá kennsluráðgjöfum Skólaskrifstofunnar þar sem þeir óska eftir því að fá endurmenntunarstyrk fyrir árið 2004 fluttan til ársins 2005.
Stjórnin sér sér ekki fært að verða við erindinu þar sem það stangast á við 5. grein símenntunarstefnu Skólaskrifstofu Suðurlands og í ljósi þess að ekki var gert ráð fyrir flutningi styrksins í fjárhagsáætlun 2005.
5. Starf iðjuþjálfa á Suðurlandi og útvíkkun starfssviðs Greiningarteymis barna.
Lagt var fram bréf til forstöðumanns Skólaskrifstofu Suðurlands, framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra og framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frá Greiningarteymi barna á starfssvæði heilsugæslu Selfoss frá 19. nóvember 2004 þar sem óskað er eftir því að starfs
svæði teymisins verði útvíkkað út fyrir þjónustusvæði Heilsugæslu Árborgar í samræmi við breytt hlutverk Heilbrigðisstofnunarinnar. Ennfremur að unnið verði að því að iðjuþjálfi bætist í teymið.
Forstöðumaður greindi frá fundi sem forstöðumaður og framkvæmdastjórar áttu 14. janúar sl. og þessi mál voru rædd. 30% starf iðjuþjálfa var á fjárhagsáætlun Skólaskrifstofu Suðurlands árin 2003 og 2004, en ekki var gert ráð fyrir starfinu í fjárhagsáætlun 2005 þar sem miklar breytingar og endurskipulagning standa yfir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands og ekki talið líklegt að af ráðningu yrði á árinu 2005. Forstöðumaður og framkvæmdastjórar munu funda aftur
27. janúar.
Stjórnin tekur jákvætt í ráðningu iðjuþjálfa og felur forstöðumanni að vinna málið áfram.
6. Önnur mál.
Lísbet spurðist fyrir um stöðu talmeinafræðings. Málið rætt.
Fundargerð lesin upp og staðfest.
Fundi slitið kl. 17:05.
Kristín Hreinsdóttir
Magnús Ágústsson
Katrín Þ. Andrésdóttir
Rur Guðmundsdóttir
Ásmundur Sverrir Pálsson
Margeir Ingólfsson
Lísbet Nílsdóttir
Karl Pálmason
