72. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

72. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands

haldinn að Austurvegi 56, Selfossi, miðvikudaginn 24. mars 2004 kl. 16:00.

Mættir: Ásmundur Sverrir Pálsson, Margeir Ingólfsson, Eyja Þóra Einarsdóttir og Karl Pálmason.

Aðrir: Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður, Katrín Þ Andrésdóttir (KS), Rut Guðmundsdóttir (Skólastjórafél. Suðurlands), Hannes Stefánsson (FÁS) og Lísbeth Nílsdóttir (FL). Einnig Hrund Harðardóttir og Steinunn Tómasdóttir kennarar í Flúðaskóla undir 1. lið.

Herdís Þórðardóttir boðaði forföll.

Fundargerð ritaði Kristín Hreinsdóttir.

Formaður setti fundinn og lagði fram tillögu um breytingu á dagskrá. Samþykkt.

1. Kynning á þróunarverkefni um fjölgreindakenningu Gardners í Flúðaskóla.

Steinunn Tómasdóttir og Hrund Harðardóttir kynntu þróunarverkefnið sem staðið hefur yfir á annað ár í Flúðaskóla.

Steinunn og Hrund fóru af fundi kl. 16:40.

2. Staða skv. fjárhagsáætlun 2004.

Forstöðumaður kynnti stöðu skv. fjárhagsáætlun 2004. Fjárhagsstaðan er í góðu samræmi við fjárhagsáætlun.

3. Bókanir frá bæjarráðsfundi Árborgar og stjórnarfundi SASS um jákvæða fjárhagsafkomu Skólaskrifstofunnar árið 2003.

Formaður stjórnar fór yfir bókanirnar, en í báðum er lýst ánægju með jákvæða fjárhagsafkomu skrifstofunnar. Einnig kemur fram í bókun stjórnar SASS að hún lýsir ánægju sinni með þau þróunarverkefni sem kynnt voru á síðasta stjórnarfundi Skólaskrifstofunnar og hvetur skóla á Suðurlandi til að kynna þróunarverkefni sín.

4. Breyting á reglugerð um sérfræðiþjónustu nr. 386/1996.

Formaður greindi frá því að þegar yfirfærsla grunnskólans fór fram var gert ráð fyrir að lestrargreiningar færu fram á Lestrarmiðstöð. Þar sem Lestrarmiðstöðin annaði ekki eftirspurn fóru sveitarfélögin að sinna þessu hlutverki. Nú hefur þetta hlutverk sveitarfélaga verið fest í reglugerð án þess að gert sé ráð þeim kostnaði í fjárveitingum vegna grunnskóla.

Formaður reifaði þær leiðir sem færar eru til að sinna lestrarskimunum á Suðurlandi. Forstöðumaður greindi frá áætluðum kostnaði við þá þjónustu sem mun bætast við hjá Skólaskrifstofunni með skipulegri skimun í skólum og tilkomu nýrra greiningartækja ef kaupa þarf vinnuna í verktöku. Ljóst er að ef þessi vinna bætist við á Skólaskrifstofu þarf að ráða annan sérkennsluráðgjafa til starfa. Ræddar voru ýmsar leiðir til að sinna þessari skyldu sveitarfélaganna, m.a. sú leið að leita eftir viðbrögðum frá sveitarstjórnum á Suðurlandi.

5. Samningur um gagnasafn við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Forstöðumaður kynnti samning um gagnasafn við Fjölbrautaskóla Suðurlands, en með honum er áfram tryggður aðgangur Fjölbrautaskólans að safninu. Stjórnin staðfestir samninginn samhljóða.

6. Önnur mál.

a) Forstöðumaður skýrði frá stöðu mála varðandi sérdeild fyrir börn með félags- og tilfinningaraskanir.

b) Forstöðumaður sagði frá vinnu starfsfólks Skólaskrifstofu Suðurlands í kjölfar alvarlegra áfalla á Suðurlandi að undanförnu.

 

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 18:35.

Ásmundur Sverrir Pálsson

Margeir Ingólfsson

Eyja Þóra Einarsdóttir

Karl Pálmason

Katrín Þ. Andrésdóttir

Rut Guðmundsdóttir

Hannes Stefánsson

Lísbeth Nílsdóttir

Kristín Hreinsdóttir